Hljóðritun frá opnunartónleikum hátíðarinnar í Tómasarkirkjunni Leipzig, 12. júní 2025. Fram koma Kór Tómasarkirkjunnar og Gewandhaus-hljómsveitin í Leipzig og einsöngvararnir Elisabeth Breuer, Gunta Smirnova, Alex Potter, Benedikt Kristjánsson og Manuel Walser. Andreas Reize stjórnar og einleikari á orgel er Johannes Lang.
Á efnisskrá:
- Prelúdía og fúga um nafnið Bach eftir Franz Liszt.
- Sinfonia í d-moll úr kantötunni „Wir müssen durch viel Trübsal“, BWV 146 eftir Johann Sebastian Bach.
- „Tönet, ihr Pauken! Erschallet, Trompeten!“, kantata BWV 214 eftir Johann Sebastian Bach.
- Kyrie og Gloria, úr Messu í -h-moll BWV 232 eftir Johann Sebastian Bach.