Það sem breytingaskeiðið kenndi mér

Eftirtíðalok

Í þessum síðasta þætti verður fjallað um þriðja undirtímabil breytingaskeiðsins, eftirtíðalokin (e. postmenopause). Rætt verður um þetta tímabil út frá mannfræðilegu sjónarhorni, og skoðaðar verða þær breytingar sem verða á stöðu og upplifun kvenna þegar þær komast á eftirtíðalokaskeiðið. Skoðaðar verða leiðir til takast á við einkenni með óhefðbundnum lækningum, auk þess sem sjónum verður beint mikilvægi réttrar næringar fyrir konur á breytingaskeiðinu.

Viðmælendur þáttarins eru Arndís Bergsdóttir, doktor í safnafræði, Birna Ásbjörnsdóttir, næringarfræðingur, Dagmar Eiríksdóttir, nálastungulæknir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur, Jóhann Heiðar Jóhannsson, formaður Orðanefndar læknafélaganna, Sara Stef. Hildardóttir, upplýsingafræðingur, og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mannfræði.

Umsjón: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.

Aðstoð við þáttagerð: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Frumflutt

21. nóv. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Það sem breytingaskeiðið kenndi mér

Það sem breytingaskeiðið kenndi mér

Á sama tíma og samfélagið hefur rofið þögnina um ýmis tabú sem tengjast líkama og stöðu kvenna hefur umræða um Breytingaskeiðið orðið eftir. Samfélagið virðist veita þessu náttúrulega lífsskeiði takmarkaða athygli, og miðaldra konum er ýtt út á jaðarinn í ýmsum skilningi. Í ofanálag eru upplýsingar um breytingaskeiðið brotakenndar og stundum mótsagnakenndar, sem getur af sér óöryggi, ótta og jafnvel skömm hjá sumum konum, meðan aðrar upplifa frelsi og aukinn lífskraft.

Fjallað verður um breytingaskeið kvenna út frá persónulegri reynslu þáttastjórnanda auki varpa sjónarhorn úr læknisfræði, þróunarlíffræði, næringarfræði, mannfræði, grasafræði og kynfræði ljósi á fyrirbærið. Umsjón: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.

Þættir

,