Hljóðritun frá kammertónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg, 27. júní þar sem hljómaði ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar í flutningi söngkvennanna Guðrúnar Jóhönnu Ólafsdóttur og Halldóru Óskar Helgadóttur, Þóru Kristínar Gunnarsdóttur píanóleikara, fiðluleikaranna Bjargeyjar Birgisdóttur og Sólveigar Steinþórsdóttur, Fidels Atla Quintero Gasparssonar víóluleikara, Júlíu Mogensen sellóleikara, Xun Yang kontrabassaleikara og gítarleikarans Francisco Javier Jáuregui.
Á efnisskrá:
-Chanson perpétuelle eftir Ernest Chausson.
-Sönglög eftir Pauline Viardot-Garcia í útsetningu Franciscos Javier Jáuregui fyrir rödd, píanó og strengi.
-Cantabile fyrir fiðlu og gítar eftir Niccolo Paganini.
-Söngur fuglanna eftir Pablo Casals í útsetningu Xaviers Montsalvagte fyrir söngrödd, selló og píanó.
-Tveir söngvar, Zwei Gesänge, eftir Johannes Brahms mezzósópran, víólu og píanó.
- Pastorcito Santo eftir Joaquín Rodrigo, fyrir söngrödd og klassískan gítar.
-LJóðaflokkurinn Mädchenblumen eftir Richard Strauss.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.