
Sumarmál
Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]
Það má segja að ríkt hafi borgarastyrjöld á 13.öld á Íslandi ef marka má Sturlungasögu og hún myndi sóma sér vel á hvaða sjónvarpsefnisveitu sem er, slík eru ástirnar, örlögin og átökin. Sigurður Hansen hefur verið heillaður af Sturlungu síðan hann var smástrákur og er nú safnstjóri í Kakalaskála þar sem hann hefur sett upp lista- og sögusýningu um örlög Þórðar kakala. Við brugðum okkur í Skagafjörðinn og töluðum við Sigurð.
Páll Ásgeir Ásgeirsson var hjá okkur í dag með það sem við köllum Veganestið, en hann hefur á fimmtudögum í sumar gefið okkur góð ráð í sambandi við útvivist og gönguferðir. Hann hefur hingað til talað um hvernig er gott að byrja í útivist, hvert skal halda, ferðaveðrið og í dag gaf hann góð ráð fyrir þau sem vilja leggja í fjallgöngur.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þætti dagsins:
Gatnamót / Dóra og döðlurnar (Bára Katrín Jóhannsdóttir)
And She Was / Talking Heads (David Byrne)
Lítill fugl / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson)
Nothing compares 2 U / Sinead O Connor (Prince)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]