
Sumarjazz á Jómfrúnni
Frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Umsjón: Felix Bergsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.