• 00:00:00Upphaf
  • 00:00:08Stríð Bandaríkjanna og Írans
  • 00:09:49Kveðja

Spegillinn - Sumar 2026

Stríð Bandaríkjanna og Írans

Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, þeir hófu árásir nýju, af jafnvel enn meiri þunga en áður en hlé var gert á þeim fyrir tæpum mánuði með sameiginlegri viljayfirlýsingu og Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir stríðinu væri í raun lokið.

Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Miðausturlanda. Hann segir það ekki koma á óvart vopnahléið hafi farið út um þúfur. Það hafi verið á sandi byggt og til þess eins gert vinna tíma. Hann telur ólíklegt önnur Persaflóaríki láti draga sig inn í stríðið og allsherjarstríð brjótist út í Miðausturlöndum.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

13. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn - Sumar 2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,