• 00:00:00Innviðafélag
  • 00:15:09Samningaviðræður milli Íraks og Bandaríkjanna

Spegillinn - Sumar 2026

Allt um innviðafélag og staða samningaviðræðna milli Íraks og Bandaríkjanna

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé.

Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna.

Allt hlutafé félagsins á vera í eigu ríkissjóðs. Til styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði.

Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar.

Birt

19. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn - Sumar 2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,