
Sinfóníukvöld - Á leið í tónleikasal
Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.
Ása Briem ræðir Bryndísi Guðjónsdóttur og Ólaf Kjartan Sigurðarson, sem syngja einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Lýrískri sinfóníu Alexanders Zemlinsky.
Í þættinum hljómar ennfremur Opus 100 af plötu Gyðu Valtýsdóttur Epicycle frá árinu 2017. Verk Gyðu, byggt á öðrum þætti Píanótríós Schuberts op. 100. Flytjendur, með Gyðu eru Shahzad Ismaily á gítar og Julian Sartorius á trommur.
Einnig hljómar brot úr lokaþætti Lýrískrar sinfóníu Zemlinskys, í flutningi Bryn Terfel og Vínarfílharmóníunnar undir stjórn Giuseppe Sinopoli, undir upplestri Ólafs Kjartans á þýðingu Reynis Axelssonar á ljóði Rabindranath Tagore.
Í hléi er flutt brot úr þætti frá UNESCO í umsjá Gunnars Stefánssonar, Eldurinn á ein upptök, þar sem fjallað er um Rabindranath Tagore.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.