Silfuröld revíunnar

1. þáttur. Rjúkandi ráð

Alþekktir eru söngleikir bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona: „Deleríum búbónis", „Rjúkandi ráð", „Allra meina bót" og „Járnhausinn", sem fram komu á árunum 1954-64. Jón Múli samdi lögin, sem mörg komust í hóp okkar vinsælustu dægurlaga, og Stefán Jónsson fréttamaður átti þátt í sumum leikritunum ásamt Jónasi. Þessi leikrit eru stundum talin revíur og á það einkum við um „Rjúkandi ráð".

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Silfuröld revíunnar

Silfuröld revíunnar

Í Silfuröld revíunnar verður fjallað um íslenskar revíur frá 1960 og til okkar daga. Margir halda svo til engar revíur hafi verið samdar hér á þeim tíma, en þær eru fleiri en ætla mætti. Það vita t.d. ekki allir lögin „Úti í Hamborg" eftir Jón Sigurðsson, „Kvöldljóð" eftir Jónas Jónasson og „Segðu mér það, vindur" eftir Geirmund Valtýsson eru upphaflega revíulög. Meðal rithöfunda sem komið hafa við sögu revíunnar á þessum áratugum eru Jökull Jakobsson, Þórarinn Eldjárn og Þorvaldur Þorsteinsson, og af tónskáldum nefna Magnús Ingimarsson, Gunnar Þórðarson og Hjálmar H. Ragnarsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,