Sagnaslóð

Arnarhreiður á Snæfellsnesi

Í þættinum er frásögn af heimsókn í arnarhreiður á Snæfellsnesi á sjötta áratug síðustu aldar. Frásögnin er eftir Birgi Kjaran og birtist í bók hans Haförninn, sem kom út hjá Bókfellsútgáfunni árið 1967.

Lesið er úr kaflanum „Horft í augu hafarnar“, þar sem hlustendur kynnast lifnaðarháttum arnarins og fleiri fugla. Þar segir einnig frá ófleygum en stálpuðum arnarunga sem var að búa sig undir sitt fyrsta flug.

Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.

Umsjón: Jón Ormar Ormsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. október 2009.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,