Party Zone Undir diskókúlunni 29. ágúst
Diskókúlan snýst í PartyZone: Undir Diskókúlunni og kyndir upp minningar af dansgólfinu.

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.