Party Zone Undir diskókúlunni 20. júní
Afleggjaraþáttur PartyZone, sem heitir Undir Diskókúlunni er mættur aftur á dagskrá Rásar 2 núna í sumar. Dansbombur fortíðar, öll lögin sem hlustendur muna eftir í nostalgíukasti…

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.