
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í gærkvöldi fjallaði Kveikur um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda en á síðasta áratug hefur þessum úrræðum fjölgað hratt. Stjórn Farsældartúns í Mosfellsbæ hefur bent á að mikið úrræðaleysi hafi verið í málefnum barna með fjölþættan vanda. Frá árinu 2023 hefur sjálfseignarstofnunin Farsældartún í Mosfellsbæ verið tilbúin að vinna ásamt hagsmunaaðilum að uppbyggingu þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Hægt væri á næstu árum að ljúka við uppbyggingu þeirra úrræða sem samstaða næðist um að byggja upp á Farsældartúni en hvernig er staðan á verkefninu? Haraldur Líndal, formaður stjórnar Farsældartúns í Mosfellsbæ, kemur til okkar.
Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, segir að umdeild breyting á fyrirkomulaginu við Loftbrú skili meira fé en nokkru sinni áður í verkefnið. Hún segir dapurt að sjá pólitíska fulltrúa þeirra flokka sem fóru hér með völd árum saman en völdu að setja minna fjármagn í að greiða niður flug fyrir fólk á landsbyggðinni setja á fót pólitískt leikrit um annað. Breytingar á Loftbrúnni hafa verið harðlega gagnrýndar en Eydís er hrifin. Við heyrum í henni.
Í umræðunni um framtíð og fyrirkomulag Ríkisútvarpsins er stundum spurt af hverju RÚV er á samfélagsmiðlum. Þetta er ein af spurningunum sem verður svarað á árlegu útvarpsþingi á morgun frá klukkan 10 til 12 í Útvarpshúsinu, hér Efstaleiti 1. Yfirskriftin að þessu sinni er Miðlun til framtíðar. Lára Kettler Kristjánsdóttir, samfélagsmiðlastjóri RÚV og Ingunn Lára Kristjánsdóttir, verkefnastjóri fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum RÚV koma til okkar í spjall um viðveru RÚV á samfélagsmiðlum.
Fyrsta heildstæða stefna stjórnvalda og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi verður kynnt til sögunnar á morgun. Þá verða kynntar helstu niðurstöður nýlegrar skýrslu um stöðu barnafjölskyldna á Íslandi. Hvaða áhrif hefur efnahagsleg staða á líðan og þátttöku barna? hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig má bæta stuðning og jafna tækifæri? Kolbrún Áslaug Baldursdóttir þingmaður, sem vann að stefnunni og aðgerðaáætluninni, kemur til okkar ásamt Kolbeini Stefánssyni en hann er einn af höfundum skýrslunnar um stöðu barnafjölskyldna.
Tómstundir, kynfræðsla og geðheilbrigðisþjónusta er á meðal þess sem ungt fólk úr ungmennaráðum barnvænna sveitarfélaga ætlar að ræða við fólkið sem stýrir þessum málum á Áhrifadögum ungmenna í Hofi á Akureyri í dag og á morgun. Við setjum okkur í samband við Akureyri og þar verða Marín Rós Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga UNICEF, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir frá ungmennaráði Akureyrar og Sandra Björk Freysdóttir frá ungmennaráði Akraness.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.