Morgunútvarpið

Tekist á um fjárlagafrumvarp,dagbók lögreglunnar,jafnréttismál og Samfylkingin í borginni vill efla forvarnir

Samfylkingin vill Reykjavíkurborg efni til samstarfs um víðtækar aðgerðir til efla forvarnir barna og ungmenna í borginni með vísan til aukinnar neyslu vímuefna og vaxandi tíðni ofbeldis og áhættuhegðunar í samfélaginu. Tillagan verður lögð fram á fyrsta borgarstjórnarfundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Skúli Helgason borgarfulltrúi kom og fór yfir tillöguna.

Síðustu misseri hafa konur tekið sér áberandi stöður og leiðtogahlutverk í samfélaginu og fólk veltir því fyrir sér hvort jafnréttið hreinlega bara komið. Jafnvægisvogin segir aðra sögðu en staðan breytist á hraða snigilsins. Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Rósa Viggósdóttir frá Félagi kvenna í atvinnulífinu komu til okkar ásamt Gunnari Gunnarssyni frá Credit info og fóru yfir gögnin.

Kvartanir vegna kynlífsathafna. Maður dettur í karókí. Kúkur á bílahúddi. Þetta er aðeins brotabrot af því sem lögreglan þarf fást við í störfum sínum og er búið framleiða gamanþætti sem byggja á dagbók lögreglunnar. Þættirnir heita einmitt Dagbók lögreglunnar, verða sýndir á Sýn+ og við fengum til okkar leikarana og handritshöfundana Odd Júlíusson og Ólaf Ásgeirsson í spjall um þættina en Ólafur situr einnig í leikstjórastólnum.

Ríkisstjórnin kynnti fjárlög í gær með talsverðum tilþrifum en þau eiga vera hallalaus í fyrsta skipti frá árinu 2018. Ekki eru allir sáttir við fjárlögin eins og gefur skilja og við fengum til okkar Njál Trausta Friðbertsson úr Sjálfstæðisflokknum gráan fyrir járnum og Grím Grímsson úr Viðreisn til verjast honum fimlega í beinni útsendingu.

Birt

8. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,