Á Rás 1 eru áhugaverðir þættir í gangi sem heita Geðveik mamma. Þar fléttar Hera Guðmundsdóttir saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Hera sagði okkur frá þáttunum.
Ragna Ingólfsdóttir, Ólympíufari í badminton og meistaranemi í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði við Háskólann í Reykjavík, birti áhugaverða grein á Vísi í síðustu viku þar sem hún fjallaði um hvar mörkin liggja milli foreldra og þjálfara. Í greininni kemur fram að skýr mörk skipti máli og að foreldrar eigi ekki að ákveða liðsskipan, spilatíma eða taktík – það sé hlutverk þjálfarans. Þá kemur fram að mótlæti sé ekki alltaf óvinur; börn tapi, sitji á bekknum og verði fyrir vonbrigðum. Með réttum stuðningi getur sú reynsla verið lærdómur – ekki vandamál sem fullorðna fólkið þarf að leysa. Ragna kom til okkar.
Nú styttist í að við getum farið að skríða undir teppi og ræst streymisveiturnar, sem eru í startholunum með splunkunýtt sjónvarpsefni. En hvað er framundan? Hvað eigum við að horfa á? Okkar allra besti Þráinn Steinsson mælir með hinu og þessu áhugaverðu.
Meirihluti ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um að veröldin hætti að nota Mercator-heimskortið svokallaða. Í staðinn verði tekið upp kort sem sýnir stærð Afríku í réttum hlutföllum við önnur heimssvæði. Hvað þýðir þetta? Höfum við semsagt séð Afríku í röngu ljósi síðustu ár? Guðmundur Valsson, sérfræðingur í landmælingum hjá Náttúrufræði stofu var á línunni.
Þýski þjóðernisflokkurinn Annar valkostur fyrir Þýskaland (AfD) vann stórsigur í kosningum í sambandslandinu Saxland-Anhalt um helgina. AfD er skilgreindur sem öfgahægrihópur af þýsku leyniþjónustunni, sem segir flokkinn vanvirða heila þjóðfélagshópa í Þýskalandi og brjóta gegn mannlegri reisn þeirra. Við heyrðum í Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.