Morgunútvarpið

Icelandair,Hugarafl,ESB,og Elín Hirst og Kári Stefáns um uppgröftinn á Þingvöllum

úttekt á starfsemi Hugarafls, stærstu grasrótarsamtaka fólks með andlegar áskoranir á Íslandi, sýnir samtökin skila samfélagslegum og opinberum ávinningi upp á um 482 milljónir króna á ári með því styðja fólk með geðrænar áskoranir til aukinnar virkni, bata og þátttöku í samfélaginu. Úttektin var kynnt á dögunum en þrátt fyrir aukið umfang starfseminnar hefur fjármögnun Hugarafls ekki haldið í við fjölgun notenda verðlagsþróun. Grétar Björnsson, formaður Hugarafls, kom til okkar.

Kjaradeila Icelandair og flugmanna hefur stökkbreyst í umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Lítið virðist þokast í deilunni og fölmargar flugferðir hafa verið felldar niður undanfarið en tvennur sögum fer af því af hverju það hefur verið gert. Þá hafa flugmenn sagt rekstur Icelandair byggja á því kaupa frídaga af flugmönnum, sem vilja heldur verja tíma með fjölskyldum sínum. Aðilar málsins eru komnir í fjölmiðlabann beiðni ríkissáttasemjara en Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair kom til okkar og ræddi málin.

Þingvallanefnd getur ekki veitt leyfi án dómsúrskurðar til opna gröf og komast beinum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar vegna DNA-sýnatöku. Iðulega hafa verið uppi bollaleggingar í gröfinni hvíli danskur bakari en ekki Jónas. Unnið er gerð heimildarmyndar um Jónas Hallgrímsson en fjölmiðlakonan Elín Hirst fer fyrir hópi þess fólks sem vill opna gröf Jónasar ásamt Páli Valssyni sagnfræðingi. Elín kom til okkar ásamt Kára Stefánssyni.

Ljóst er það verður tekist á um Evrópusambandið þangað til í ágúst þegar þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna fer fram. Tvær frænkur eru áberandi á sitthvorum enda umræðunnar, þær Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn. Við héldum áfram ræða um ESB og fengum frænkurnar til okkar.

Birt

3. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,