Morgunútvarpið

Lykilhringrás í hafinu að veikjast,vorhreingeringin,Crohns og hvernig er að vera borgarstjóri

Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er dag. Talið er yfir 10 milljónir manns í heiminum, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu. Í ár er athygli vakin á því það á ekki vera neitt feimnismál tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum. Margir sem lifa með bólgusjúkdóma í meltingarvegi þurfa komast á klósett án tafar og skortur á skilningi eða aðgengi getur haft veruleg áhrif á lífsgæði þeirra, þátttöku í samfélaginu og öryggi. Með uppsetningu fjólublás salernis í miðbænum vilja CCU-samtökin auka vitund almennings um þessi málefni og stuðla auknum skilningi og samkennd. Ásgeir Theódórs, sérfræðingur í Meltingarlækningum og Þórhildur Björk Sturlaugsdóttir komu til okkar.

Vísir greindi frá því í gær vísbendingar um lykilhringrás í hafinu í kringum Ísland veikjast vegna hnattrænnar hlýnunar séu svo afgerandi stórauka þarf aðgerðir til draga úr losun. Þetta er mat Loftslagsráðs. Hrun hringrásarinnar myndi hafa skelfilegar afleiðingar og Loftslagsráð segir eina raunhæfa leiðin til þess draga úr áhættunni standa vörð um ýtrustu markmið Parísarsamningsins. Eru stjórnvöld taka þessu alvsarlega? Af hverju er ekki meira talað um þetta. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, situr í umhverfis- og samgöngunefnd og hún kom til okkar.

Hildur Björnsdóttir er með öll spil á hendi við myndun á nýjum meirihluta í Reykjavík. Líklegast þykir hún myndi annað hvort þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokknum eða tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum. En hvað bíður Hildar? Hvenær mætir borgarstjóri í vinnuna og er þetta ekki bölvað puð? Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá starfinu.

er sólin heldur betur byrjuð afhjúpa hvern rykfyllta króka og kima heimilisins og því um gera rífa fram blása lífi í tuskurnar. En hvernig eigum við bera okkur í vorþrifunum svo þau verði sem skilvirkust? Systurnar Guðbjörg Erna Sigurpálsdóttir og Sigrún Sigurpálsdóttir frá Akureyri leiða hópinn Þrifatips á Facebook sem inniheldur rúmlega 30 þúsund snyrtipinna og gáfu hlustendum Morgunútvarpsins góð ráð.

Birt

19. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,