Morgunútvarpið

Of monsters and men,forstjóri ÁTVR,Brennu-Njálssaga og Pillow talk

Brennu-Njálssaga verður sett í nýjan og spennandi búning í Salnum í Kópavogi næstkomandi föstudag og laugardag. Guðni Ágústsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir mæla þetta stærsta bókmenntaafrek Íslandssögunnar af munni fram og kallast á við Gissur Pál Gissurarson óperusöngvara sem flytur áheyrendum Njálutengda og rammíslenska söngtónlist. Guðni Ágústsson mætir í Morgunútvarpið og segir okkur frá þessu.

Íslendingar hafa eignast nýjan afreksmann í kokteilagerð. Róbert Aron Proppé, Íslandsmeistari í kokteilagerð, lenti á dögunum í þriðja sæti á Evrópumótinu í kokteilagerð, sem fram fór í Protaras á Kýpur. Róbert lét ekki þar við sitja heldur hlaut einnig hin eftirsóttu Arnarverðlaun, sem veitt eru barþjóni undir 25 ára aldri með hæstu heildareinkunn og besta árangur í skriflegu þekkingarprófi. Róbert Aron mætti til okkar, nýlentur frá Kýpur.

Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík bruggfélags, mætti til okkar í síðustu viku og sagði íslenskan handverksbjór eiga undir högg sækja í Vínbúðum, þar sem stefnan væri koma út magni frekar en gæðum. Vildi hann meina þetta hluti af stefnubreytingu sem varð eftir dóm sem féll gegn ÁTVR fyrir nokkrum misserum. Þorgerður Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, mætti til okkar og ræddi við okkur um samband Vínbúðarinnar við íslenska bruggara.

Hljómsveitin Of Monsters and Men er ein farsælasta hljómsveit Íslandssögunnar og hefur gert það gott á erlendri grundu frá því hún sló í gegn með slagaranum Little Talks árið 2011. Hljómsveitin sendi frá sér fjórðu breiðskífuna sína, All Is Love and Pain in the Mouse Parade, í fyrra og fékk á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin fyrir hana. En hvað er framundan hjá Of Monsters and Men? Þau Nanna Hilmarsdóttir og Brynjar Leifsson kíktu til okkar í Morgunútvarpið.

Birt

24. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,