Morgunútvarpið

Menntun barna á Gaza,konudagurinn,11 hvolpa got og er Jakob Birgis enn nikótínlaus?

Hundruð þúsunda barna á Gaza hafa verið svipt réttindum sínum til náms. Árásir Ísraelsher hafa haldið áfram þrátt fyrir vopnahlé í gildi og eru námsgögn loksins farin berast inn á svæðið. UNICEF fer af stað með verkefnið aftur til náms á Gaza á fimmtudag og miðar það því koma 336 þúsund börnum aftur í skóla á þessu ári og veita þeim sálræna aðstoð. Sigyn Blöndal, kynningarstjóri UNICEF, fór á Vesturbakkann fyrir áramót og þar með eigin augum hverjar áskoranirnar eru. Húnkom til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu metnaðarfulla verkefni.

Vísir greindi frá því í vikunni íslenska tíkin Þekla gaut ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn Guðný Halla Gunnlaugsdóttir segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Við heyrðum í henni og spurðum hvernig gengur.

Mánuður er liðinn frá því við tókum eftirminnilegt viðtal við Jakob Birgisson um níkotínfíknina, sem hann var reyna vinna bug á. Þá var vika síðan hann lagði lummurnar á hilluna og var komið því kanna hvernig gengur. Er Jakob laus úr viðjum fíknarinnar eða eru dollurnar byrjaðar banka upp á? Jakob var á línunni.

Konudagurinn er framundan og þá klórar fólk sér í kollinum yfir hvað á gera fyrir konur þessa lands. Er gamli, góði blómvöndurinn nóg eða þarf ganga lengra? Marta María í Smartlandinu er með puttann rækilega á púlsinum og hún kom til okkar og lagði línurnar. Ættu kannski allir dagar vera konudagar?

Eftir svona viku dugir ekkert minna en óperusöngvarar til fara yfir fréttir vikunnar. Þau Kristín Sveinsdóttir, sem syngur hlutverk Carmenar í samnefndri sýningu í Tjarnarbíói og Eggert Reginn Kjartansson sem syngur hlutverki Don José komu til okkar og hófu upp raust sína.

Birt

20. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,