Kristrún Frostadóttir
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Vera og Helgi um danskar fótboltabullur og útdauð dýr sem reisa á upp frá dauðum.
Ingibjörgu Þórðardóttir blaðamaður í Lundúnum sagði frá dómi sem Alþjóðadómstóllinn á að kveða upp síðar í dag og talið er að geti markað þáttaskil í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, og önnur tíðindi af loftslagsmálum á alþjóðavettvangi.
Í seinni hluta þáttarins var gestur Morgungluggans Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri, sem stendur í ströngu með starfsfólki sínu vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Hún sagði frá gosmóðunni sem legið hefur yfir landinu og viðbrögðum Veðurstofunnar við eldgosahrinunni.
Tónlist:
America - First Aid Kit
Iron Man - The Cardigansa
Bros - Teitur Magnússon

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.