Menningarpúlsinn

Skjaldborg, Gríman, gróska í íslenskri og erlendri kvikmyndagerð og leikhússenu

Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur þessu sinni voru Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur á leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnandi, og Hrönn Sveinsdóttir kvikmyndagerðarkona og framkvæmdastjóri Bíó Paradís.

Til umræðu voru Grímuverðlaunin, heimildarmyndahátíðin Skjaldborg, rússneski kvikmyndaleikstjórinn Andrei Tarkovsky, Gunnar Eyjólfsson leikari, útskriftarhátíð kvikmyndadeildar Listaháskóla Íslands og líf í grasrót íslenskra sviðslista og kvikmyndagerð.

Birt

29. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Menningarpúlsinn

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.

Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir

Þættir

,