Þáttur 13 af 13
Umsjónarmaður fer yfir feril Vilhjálms Vilhjálmssonar, söngvara, og leikur lög úr nýju þriggja diska safni með tónlist hans.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.