Listahátíð í Reykjavík 2026

Sópransöngkonan Angel Blue og Bryan Wagorn

Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Angel Blue og píanóleikarans Bryans Wagorn sem fluttu fjölbreytta efnisskrá í Eldborg, Hörpu 14. júní sl. á Listahátíð í Reykjavík.

Bandaríska sópransöngkonan Angel Blue hefur vakið heimsathygli á síðustu árum, þekkt fyrir mikla breidd í túlkun sinni og þykir hafa einstakan, silkimjúkan hljóm. Hún er tvöfaldur Grammy verðlaunahafi og hefur sungið í mörgum helstu óperuhúsum heims auk þess koma fram á fjölda einsöngstónleika.

Efnisskrá:

Gabriel Fauré: Clair de lune, Mandoline, Fleur jetée

Claude Debussy: Clair de lune (einleikur á píanó)

Richard Strauss: Heimliche Aufforderung, Allerseelen, Befreit, Morgen, Cäcilie

Harold Arlen: I Wonder What Became of Me

George Gershwin: Our Love Is Here to Stay, Summertime

Kurt Weill: Youkali

Oscar Peterson: Ballad to the East from Canadiana Suite (einleikur á píanó)

Lee Hoiby: Lady of the Harbor, There Came a Wind Like a Bugle

Henry Burleigh: Deep River (útsetn.)

Hall Johnson: Ride On, King Jesus (útsetn.)

Aukalög:

Guillamo Puccini: O mio babbino caro, Vissi d’arte

Sergei Rachmaninoff: Spring Waters

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Birt

21. júní 2026

Aðgengilegt til

22. júní 2027

Listahátíð í Reykjavík 2026

Þættir

,