Letigarðurinn

Rimlarokk og glataðir glæpamenn (aukaþáttur)

Árið 1982 var merkilegt í sögu fangelsismála á Íslandi. Þá um haustið héldu fangar í fyrsta skipti blaðamannafund í fangelsinu á Litla Hrauni. Ástæðan var útkoma plötunnar Rimlarokks með hljómsveitinni Fjötrum. Þrír af fjórum liðsmönnum sveitarinnar voru fangar á Litla Hrauni. T veir þeirra eru látnir. Við rifjum upp plötuna, fjölmiðlaumfjöllunina, viðtökurnar og ferlið við gerð hennar í spjalli við Rúnar Þór Pétusson og Sigmund Erni Rúnarsson. Rúnar Þór var eini liðsmaður sveitarinnar sem ekki var fangi. Hann lýsir undrabarninu Halldóri Fannari Ellertssyni; hinum eina sanna Rimlarokkara. Fyrrum hljómborðsleikara Roof tops sem festist í hringrás fyllerís og smáglæpa. Í seinni hlutanum heyrum við á tal þeirra Helga og Hrafnkels í bílferð á leiðinni heim frá Litla Hrauni eftir síðustu heimsókn þeirra þangað í lok nóvember. Hvernig fannst Hrafnkeli koma í fyrsta sinn inn í fangelsið og af hverju skyldi Helgi veskið eftir undir koddanum?

Umsjón: Helgi Seljan

Tæknimaður Hrafnkell Sigurðsson.

Birt

24. des. 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Letigarðurinn

Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.

Þættir

,