Forseti Kirkjuþings vill flýta biskupskjöri og harmar að óvissa hafi skapast um stöðu biskups.
Sex eru látnir og sjötíu og fimm særðir eftir árás á íbúðarhús í heimaborg Úkraínuforseta í morgun.
Settur forstjóri Skipulagsstofnunar segist vona að tekið verði tillit til ábendinga sem stofnunin gerir við fyrirhugaða uppbyggingu í Landmannalaugum. Framkvæmdirnar megi ekki verða til þess að álag á náttúruna aukist.
Ung kona sem notar hjólastól segir fólk sem notar hjólastól þurfa að láta allt of mikið yfir sig ganga til að njóta sama ferðafrelsis og aðrir. Flugvellir og flugfélög þurfi að endurskoða viðhorf sín til fatlaðra.
Bifvélavirkjameistari segir rafbíla bila sjaldnar en eldsneytisbíla. Bifvélavirkjar séu almennt vel undirbúnir til að gera við rafbíla sem eru ekki svo ólíkir hefðbundnum og sambærilegum bensínbílum.