Slökkviliðið hefur kært eiganda gluggalauss kjallara við Miklubraut í Reykjavík, þar sem fjögurra manna fjölskylda bjó við bágan kost. Eigandinn er kærður fyrir brot á brunavarnalögum en kæran verður ekki birt.
Gosstöðvunum við Litla-Hrút var lokað klukkan fimm í dag vegna slæms skyggnis. Lögreglan ætlar síðar í kvöld að ýta við fólki að koma sér af svæðinu. Allt útsýnisflug yfir gosstöðvunum var bannað í morgun vegna framkvæmda á Keflavíkurflugvelli.
Yfirstandandi júlímánuður stefnir í að verða sá heitasti í heimi frá því mælingar hófust. Hitabylgjan á norðurhveli jarðar sækir í sig veðrið og áfram er spáð steikjandi hita út mánuðinn.
Samkeppniseftirlitið hefur lagt þriggja og hálfrar milljónar króna dagsektir á sjávarútvegsfyrirtækið Brim fyrir að hafa ekki veitt nauðsynlegar upplýsingar í þágu rannsóknar eftirlitsins.