Kvika færist nær yfirborðinu á Reykjanesskaga og innflæðið er mun hraðara en í aðdraganda gossins í fyrra. Lítið hefur dregið úr ásókn ferðamanna þrátt fyrir viðvaranir.
Settur ríkisendurskoðandi telur að ríkið hafi orðið af miklum verðmætum vegna vinnubragða stjórnenda Lindarhvols. Hann gerir margar athugasemdir við starfsemi félagsins í greinargerð sem var birt í gær.
Ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínumenn á Vesturbakkanum í dag. Á þriðja hundrað hafa fallið í átökum það sem af er ári.
Metanvinnsla sem hófst á Glerárdal við Akureyri fyrir rúmum áratug virðist brátt á enda. Akureyrarbær ætlar ekki að endurnýja strætisvagna sem ganga fyrir metani.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til fimmtán metrar í kvöld, hvassast við suðausturströndina. Léttskýjað á Norður- og Vesturlandi, en súld eða rigning suðaustan til. Suðlæg eða breytileg átt þrír til tíu á morgun og víða bjart veður, en skýjað og dálítil væta suðaustan til. Hiti fjórtán til tuttugu og þrjú stig.