
Krossfest
Við sjáum svipaðar myndir frá páskum á Filippseyjum ár eftir ár. Menn bundnir og jafnvel negldir á krossa og mannfjöldi sem fylgist með. En hvað býr að baki?
Páskana 2025 var Sigyn Blöndal viðstödd krossfestingu í San Fernando Pampanga á Filippseyjum og þar hófst leitin að svari við spurningunni: af hverju?
Hvað er það sem fær manneskju til þess að láta krossfesta sig og það jafnvel 36 ár í röð? Er fórnin tengd sjálfsmynd Filippseyinga? Hvenær er fórn orðin sjálfseyðandi? Hvað gerist í líkamanum þegar manneskja er krossfest?
Við leitina að svarinu fær Sigyn meðal annars aðstoð frá sagnfræðingum, heimspekingum, réttarmeinafræðing, ferðamönnum, blaðamönnum og þeim krossfesta.