Konsert

Sting á Paleo 2012

Í Konsert í kvöld Ætlum við fara á tónleika með Sting og halda þannig upp á afmælið hans en hann varð sjötugur núna 2. október sl.

Hann sjálfur heldur upp á afmælið með því senda frá sér plötu, fjórtándu sólóplötuna og hún heitir The Brigde, eða Brúin. Með nafninu er hann vísa til þess við þurfum brú til komast yfir vandamál heimsins, pólitísk deilumál, samfélagsleg vandamál og tilvistarkreppu heimsins. Platan sem varð til í Covid-standinu kemur út núna í nóvember.

Sting spilaði í fyrsta sinn opinberlega í 2 ár á Reeperbahn Festival í þýskalandi núna í september.

Hann heitir Gordon Matthew Thomas Sumner, verkamannssonur frá Newcastle. Hann var byrjaður starfa sem ensku og tónlistar-kennari heima í Newcastle þegar hann hitti trommarann Stewart Copeland árið 1976 og saman stofnuðu þeir hljómsveitina The Police í London ári síðar. Þeir fengu til liðs við sig frábæran gítarleikara sem þegar var búinn geta sér nafn, Andy Summers, sem er 8 árum eldri en Sting.

Í júlí 2012 spilaði hann á Paleo festival í Swiss og RTS - Ríkisútvarpið í Sviss, tók tónleikana upp. Við ætlum hlusta á þá í konsert vikunnar.

Sting ? söngur, bassi

Dominic Miller ? gítar

David Sancious ? hljómborð

Peter Tickell ? fiðla, mandolín

Vinnie Colaiuta ? trommur

Jo Lawry - bakraddir

Birt

7. okt. 2021

Aðgengilegt til

27. ágúst 2027

Konsert

Tónleikaupptökur víðsvegar úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Þættir

,