Karl verður konungur

Annar þáttur

Bretakonungur verður krýndur 6. maí 2023. 70 ár eru frá síðustu krýningu þjóðhöfðingja Breta, aldrei hefur jafn langt líðið á milli og þetta er sannarlega sögulegur viðburður.

Krýningarathöfnin byggir á ævafornum venjum sem margar hverjar virðast býsna framandi. Hvernig fer þetta allt saman fram? Það sem virðist við fyrstu sýn úrelt skrautsýning býr yfir dýpri merkingu þegar er gáð. Rætt er við fólk úr ýmsum áttum um athöfnina, stemninguna og konungsveldið.

Umsjón: Anna Lilja Þórisdóttir.

Frumflutt

28. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Karl verður konungur

Karl verður konungur

Um leið og Elísabet Englandsdrottning lést í september 2022 á 97. aldursári eftir 70 ára valdatíð tók Karl sonur hennar við völdum. Hann er ríkisarfi í sögu Bretlands sem lengst hefur beðið eftir því taka við og ætti vera vel undirbúinn fyrir starfið.

Hvað hefur hann gert öll þessi ár? Hvernig voru uppvaxtarár hans og hvernig hefur lífshlaup hans verið. Hefur það undirbúið hann vel fyrir þetta hlutverk?

Karl verður krýndur 6. maí við afar hátíðlega athöfn sem byggir á fornum hefðum og venjum. Við skyggnumst bak við rauðu flauelstjöldin og skoðum hvernig konungur er krýndur og veltum fyrir okkur hversvegna yfirhöfuð verið framkvæma þessa athöfn. Þessa þriðja Bretakonungs sem ber nafnið Karl bíða ýmsar áskoranir, ekki síst í einkalífinu þar sem samskipti í nánustu fjölskyldu hans hafa verið stirð.

Hver er maðurinn sem tekur við þessu áberandi og valdamikla hlutverki? Við förum aftur í tímann og líka áfram og veltum fyrir okkur; hver er framtíð breska konungsveldisins. Til varpa ljósi á það er rætt við fólk úr ýmsum áttum.

Umsjónarmaður: Anna Lilja Þórisdóttir.

Þættir

,