Hold

3. þáttur

Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir.

Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson.

Birt

6. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hold

Einu sinni þótti fallegt vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því velja óheilsusamlegt líferni og ættu vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu.

Offita er skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir.

Ber þá feitu fólki þá skylda til fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra vera mjó?

Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu af því grennast með hjálp lyfja og aðgerða.

Þættir

,