Klara Einarsdóttir frumflutti nýtt lag og var í skemmtilegu spjalli hjá Friðriki. Þá mætti Rúnar Örn Friðriksson söngvari, sem er þekktastur fyrir að hafa verið söngvari í hljómsveitinni Sixties, í gott spjall. Rúnar greindist með Parkison fyrir fimm árum og deildi því með hlustendum hvernig er að lifa með sjúkdómnum sem söngvari. Lagaþrennan var á sínum stað og ættarmótið á tólfta tímanum var stútfullt af íslenskri tónlist.