Angantýr

Heimildaþáttur

Sóley Stefánsdóttir fjallar um bókina Angantý eftir Elínu Thorarsensen. Viðmælendur eru Sigurrós Eiðsdóttir, íslenskukennari (og afkomandi Elínar), Svavar Steinarr Guðmundsson, íslenskukennari og einn stofnmeðlima Lesstofunnar, Ingveldur Thorarensen, bókmenntafræðingur (og afkomandi Elínar) og Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur.

Frumflutt

26. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Angantýr

Angantýr

Sóley Stefánsdóttir tónskáld fjallar um langalangömmu sína Elínu Thorarensen og bók hennar Angantý. Elín gaf Angantý út á eigin kostnað árið 1946. Bókin var skrifuð í minningu Jóhanns Jónssonar skálds sem hafði verið kostgangari hjá Elínu þegar hann var nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík en þá var Elín nýlega fráskilin. Á milli þeirra tókust heitar ástir þó Jóhann væri 15 árum yngri en hún. Sambandið var litið hornauga í samfélaginu og þurfti því taka enda.

,