Æ sér gjöf til gjalda

Fyrsti þáttur

Hvers vegna gefa gjöf ef eini tilgangurinn er gjöf eða greiða á móti? Hver gaf fyrstu gjöfina og hvers vegna hélst það í tísku? Ef gjafamenning er í öllum samfélögum er hún þá allstaðar eins? Er betra gefa en þiggja og gera bara annað hvort? Hvað skilgreinir góða gjöf og er mikilvægt gefa betri gjöf en maður fær? Skiptir hugurinn máli eða er best gefa jólagjöf ársins? Reynt verður svara þessum og fleiri spurningum í fyrsta þætti.

Viðmælendur: Kristján Þór Sigurðsson, mannfræðingur, Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur, Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumaður rannsóknaseturs Verslunarinnar, Ingilín Kristmannsdóttir, mamma og Ívar Þrastarson, pabbi.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Framleiðsla: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

22. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Æ sér gjöf til gjalda

Æ sér gjöf til gjalda

Allir elska gjafir, skiljanlega, það er gaman gjöf og gaman gefa gjöf, en öllu gamni fylgir alvara. Gjöfin virðist við fyrstu sýn vera látlaust fyrirbrigði, eitthvað sætt sem við gefum einhverjum með það eitt í huga gleðja, en undir yfirborði fallegs jólapakka leynist margt ósagt, óskrifaðar reglur, pólitík og langur listi yfir gjafaferil milli einstaklinga, fjölskyldna og hópa. Gjöfinni fylgir nefnilega skuldbinding, æ sér gjöf til gjalda.

Gjafamenning er til staðar í öllum samfélögum heims og er í raun alltumlykjandi í samskiptum fólks, hvort sem það gerir sér grein fyrir því eða ekki. Við lifum, hrærumst og fylgjum reglum um gefa, þiggja og endurgjalda, líkt og við gerðum eflaust fyrir 30 þúsund árum.

Eitthvað virðist þó hafa færst til á þessum tíma og gjafainnkaupum fylgir ekki bara skuldbinding heldur líka stress, valkvíði, fjárhagsáhyggjur, spenna innan fjölskyldunnar og drama í ástarsamböndum. En hvers vegna gefum við þá gjafir, er einhver tilgangur með þessu eða getum við allt eins sleppt þessu?

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Framleiðsla: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,