Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír.
Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 53 mín.