Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Mikil ólga virðist vera meðal almennings vegna innheimtu kílómetragjaldsins sem sett var á um áramótin. Á samfélagsmiðlum sér maður fólk forviða yfir útreikningum Skattsins og nú er búið að boða til mótmælafundar annan laugardag vegna þessa. Við fengum til okkar Runólf Ólafsson hjá FÍB en félagið hefur ekki farið varhluta af óánægju félagsmanna og fengið fjölda fyrirspurna.
Ný greining Samtaka iðnaðarins sýnir að verðmætasköpun iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Þar kemur einnig fram að í fyrsta sinn í fyrra hafi útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar verið meiri en útflutningstekjur sjávarútvegarins. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins kom til okkar og sagði okkur betur frá greiningunni og iðnþingi sem framundan er.
Þolinmæði Eyjamanna er á þrotum vegna samgangna til Eyja. Nú er dýpkunarskipið sem var staðsett í Landaeyjarhöfn bilað og ekkert plan b varðandi áframhaldandi dýpkun að sögn bæjarstjórans. Á meðan siglir Herjólfur til Þorlákshafnar. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, kom til okkar.
Í ár fagnar Lúðurinn 40 ára afmæli en Lúðurinn er uppskeruhátíð fagfólks í markaðsmálum á Íslandi. Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir alls konar verk tengdu markaðsmálum og um 400 innsendingar bárust í ár. Katrín M. Guðjónsdóttir, formaður ÍMARK, kíkti til okkar.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og nokkrir aðrir þingmenn hafa lagt fram skýrslubeiðni til atvinnuvegaráðherra um framkvæmd eftirlits MAST með dýravelferð. Beiðnin er lögð fram vegna gagnrýni á framkvæmd eftirlitsins, meðal annars hvað varðar samræmi í beitingu úrræða, eftirfylgni brota og skýrleika viðmiða. En eftir hverju er verið að óska svara við? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins,var á línunni.
Rebekka Þurý Pétursdóttir frá ferðaskrifstofunni Kilroy kom til okkar og sagði okkur frá ferðalöngum á vegum þeirra sem lent hafa í ógöngum út af átökum í Mið-Austurlöndum.
Herranæturvaktin er frumsýnd hjá Herranótt MR í kvöld. Leikritið er byggt á sjónvarpsþáttunum Næturvaktin. Þær Katla Magnea Magnúsdóttir og Embla Mýrdal Jónsdóttir komu til okkar.
