Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Í þætti dagsins höldum við áfram umfjöllun um söngkonuna geðþekku og óræðu, Nancy Sinatra og fylgjumst með tónlistarferli hennar. Þar koma ýmsir við sögu og þá ekki síst hinn dimmraddaði Lee Hazlewood.
Friday´s child - Nancy Sinatra.ood
Shades - Nancy Sinatra.
Broadway - Nancy Sinatra.
Huchinsson jail - N.Sinatra
Summerwine - Nancy Sinatra og Lee Hazlewood.
This little bird - N.Sinatra
It´s such a pretty world today - N.Sinatra.
Get while the gettins good - N.Sinatra.
By the way , I still love you - N.Sinatra.
Sweet Georgia Brown - N. Sinatra.
Sugartown - N.Sinatra.
Limehouse blues - N.Sinatra.
Mama goes where papa goes - N.Sinatra
Button up your overcoat - N. Sinatra.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. ágúst 2014.

Í þáttaröðinni „Góðan daginn, mannkynssaga“ verður fjallað um það hvernig mannkynssagan getur birst allt í kringum okkur í hversdagslegum hlutum. Á bókakápu frá stríðsárunum er auglýsing fyrir útsendingar BBC til hernumdra landa, póstkort frá upphafi 20. aldar snýst um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, í þjóðlögum og textum við þau birtast löngu horfnir kóngar. Tekin verða dæmi um þetta í þáttunum og leikin tónlist sem tengist efninu. Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Sagt verður frá nokkrum Listahátíðum . Leikið verður brot úr fyrsta flutningi á Carmina Burana á Listahátíð í Þjóðleikhúsinu 1960 í flutningi hljómsveitarinnar og Fílaharmóníukórsins undir stjórn Róberts A Ottóssonar. Þetta var jafnframt fyrsta stóra verkið sem kórinn flutti.
Þá verður leikinn þáttur frá Listahátíðinni 1964 úr konsert fyrir píanó nr. 3 í d-moll eftir Sergej Rakhmanínov í flutningi Sinfóníuhljómsveitarinnar og Vladimir Ashkenazy, en þetta var í fyrsta sinn sem hann lék með hljómsveitinni.
Annar erlendur gestur á þessari hátíð var Ruth Little Magnússon. Hún hélt hér tónleika ásamt Guðrúnu Kristinsdóttur píanóleikara og munum við heyra tvö lög í þeirra flutningi frá árinu 1965.
Í lok þáttar heyrum við tvo fyrstu þættina úr Sinfóníu í A-dúr op. 90 - Ítölsku sinfnóníunni eftir Felix Mendelssohn undir stjórn Karsten Andersen í hljóðritun frá árinu 1974.

frá Veðurstofu Íslands.
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Túlkun í klassískri tónlist tók að breytast mikið þegar hin svonefnda upprunastefna fékk byr undir báða vængi eftir miðja 20. öld. Hún snýst um þá aðferðafræði að flytja tónlist fyrri alda því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Í þættinum verður fjallað um tilurð stefnunnar og áhrif hennar. Leikin verða tóndæmi úr verkum eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. Ensemble Pygmalion / Raphaël Pichon. Útg. Harmonia Mundi.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. BBC Chorus, New Philharmonia Orchestra / Otto Klemperer. Útg. Warner.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Ronald Brautigam. Útg. BIS.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Solomon Cutner. Útg. Archipel.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Philharmonica Hungarica / Antal Doráti. Útg. Decca.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Il Giardino Armonico / Giovanni Antonini. Útg. Alpha.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. San Francisco Symphony Orchestra / Michael Tilson Thomas. Útg. San Francisco Symphony.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. Sinfonieorchester des SWR / Sir Roger Norrington. Útg. SWR Classic.
Messa í Siglufjarðarkirkju. Sigurður Ægisson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari, Kirkjukór Fjallabyggðar syngur, organisti er Ave Kara Sillaots. Tæknimaður er Tryggvi Þorvaldsson.
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil/sálmur: [Ekki í sálmabók]
Ave verum corpus (sungið)
Höfundar: Wolfgang Amadeus Mozart (lag) / Innócentíus VI páfi (ljóð)
Númer: 623
Allt sem Guð hefur gefið mér
Höfundar: Sigurður Flosason (lag) / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (ljóð)
Númer: 265 Þig lofar, faðir, líf og önd
Ókunnur höfundur á 10. öld (lag) / Sigurbjörn Einarsson (ljóð)
Númer: 275 Ljós ert þú lýði
Höfundar: Giovanni G. Gastoldi (lag) / Cyriakus Schneegass (ljóð) - Guðmundur Sigurðsson (ljóð)
Númer: 101 Brauð til saðnings svöngum
Höfundar: Anfinn Øien (lag) / Per Lønning (ljóð) - Sigurbjörn Einarsson (ljóð)
Eftir predikun
Númer: [Ekki í sálmabók]
Hvernig á ég, Guð?
Höfundar: Eric Clapton (lag og ljóð) / Davíð Baldursson (ljóð)
Númer: 382
Yndislega ættarjörð
Höfundar: Bjarni Þorsteinsson (lag) / Sigurður Jónsson frá Arnarvatni (ljóð)
Eftirspil: [Ekki í sálmabók]
Tarantella - Höfundur: Charles Gounod (leikið)
Útvarpsfréttir.
Rússlandsher varpaði flugskeytum á sex hverfi Kyiv í nótt. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum drápu Rússar nær þrjú hundruð almenna borgara í Úkraínu í síðasta mánuði.
Þúsundir komu saman til mótmæla í Úkraínu í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð. Fólkið krefst þess að hætt verði við brottvikningu varnarmálaráðherrans. Zelensky segir málin til skoðunar, mótmælendur hafi náð eyrum hans.
Eldar loga enn í skógi við Drammen í Noregi, en tekist hefur að slökkva þá í byggð.
Spánn og Argentína keppa um heimsmeistaratitilinn í fótbolta klukkan sjö í kvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sitja að líkindum saman á áhorfendapöllunum, en þeir hafa eldað grátt silfur á stjórnmálasviðinu. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði segir að fótbolti sé ekki bara fótbolti, íþróttir séu alltaf pólitískar.
Íbúar á vesturhluta landsins geta gert sér vonir um að leggja regnhlífunum í lok vikunnar, þegar vindur snýr að norðan. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Á Austurlandi hefur varla komið dropi úr lofti allan júlímánuð.
Sólþyrstir ferðamenn hafa streymt á þéttsetin tjaldsvæði á suðaustur- og austurlandi um helgina, og víða hefur verið erfitt að finna pláss til að hola niður tjaldi.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í lok mánaðar, 28. júlí, er alþjóðadagur náttúruverndar. Af því tilefni rifjum við upp hver umhverfisáhrif gervigreindar eru í þætti frá því í febrúar 2025.
Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.
Frá 2011
Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.
Skýrslu vantar
Umsjón: Soffía Auður Birgisdóttir.
Annar þáttur af þremur. Um franska rit-
höfundinn Céline og fyrri heimsstyrjöldina, einnig verður fjallað um Birting
Voltaires.
Jón Karl Helgson les úr þýðingu Halldórs Laxness á Birtingi og úr þýðingu
Soffíu Auðar Birgisdóttur á Ferð til enda næturinnar eftir Céline.
Frumflutt 22.06. 1992
Hljóðritun frá tónleikum Kammersveitarinnar Elju á Sumartónleikum í Skálholti 5. júlí sl..
Tónleikarnir báru yfirskriftina „Leitin að kantor í Leipzig“ og tók efnisskráin mið af stöðu Tómaskantorsins í Leipzig árið 1723. Leikin var tónlist eftir Johann Kuhnau, sem var kantor kirkjunnar á undan Bach, Georg Philipp Telemann sem var fyrsti kostur, og svo eftir þann sem fékk að lokum starfið; Johann Sebastian Bach.
Einleikarar: Semballeikarinn Flóra Fábri og flautuleikarinn Björg Brjánsdóttir.
Einsöngvari: Benedikt Kristjánsson, tenór.
Á efnisskrá:
-In te Domine speravi, kantata fyrir hljómsveit og sópran (sungið af tenór) eftir Johann Kuhnau.
-La Bizarre, hljómsveitarsvíta eftir Georg Philipp Telemann.
-Brandenborgarkonsert nr. 5 eftir Johann Sebastian Bach.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Skreið til Nígeríu – þetta er vafalaust ein þekktasta blaðafyrirsögn allra tíma. Nú orðið eru sjaldan fluttar fréttir af skreiðarútflutningi og ætla má að orðaforðinn sem tilheyrir skreiðarverkun sé ekki lengur á allra vörum.
Í þættinum er kannaður merkingarmunurinn á orðunum skreið og harðfiskur og spáð í hvort skreið sé aðeins þurrkuð á trönum eða hvort það megi líka kalla þau mannvirki hjalla.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Óvænt bónorð leiðir litlu stúlkuna frá Ísafirði í ævintýri sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér.

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni.
Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050.
Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því.
Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Umsjón: Magnús Lyngdal Magnússon
Túlkun í klassískri tónlist tók að breytast mikið þegar hin svonefnda upprunastefna fékk byr undir báða vængi eftir miðja 20. öld. Hún snýst um þá aðferðafræði að flytja tónlist fyrri alda því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Í þættinum verður fjallað um tilurð stefnunnar og áhrif hennar. Leikin verða tóndæmi úr verkum eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler. Umsjónarmaður: Magnús Lyngdal Magnússon.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. Ensemble Pygmalion / Raphaël Pichon. Útg. Harmonia Mundi.
Bach, Johann Sebastian: Mass in B Minor, I. „Cum Sancto Spiritu“. BBC Chorus, New Philharmonia Orchestra / Otto Klemperer. Útg. Warner.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Ronald Brautigam. Útg. BIS.
Beethoven, Ludwig van: Piano Sonata No. 14, I. Adagio sostenuto. Solomon Cutner. Útg. Archipel.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Philharmonica Hungarica / Antal Doráti. Útg. Decca.
Haydn, Joseph: Symphony No. 39, „Tempesta di mare“, IV. Finale: Allegro di molto. Il Giardino Armonico / Giovanni Antonini. Útg. Alpha.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. San Francisco Symphony Orchestra / Michael Tilson Thomas. Útg. San Francisco Symphony.
Mahler, Gustav: Symphony No. 4, III. Ruhevoll, poco adagio. Sinfonieorchester des SWR / Sir Roger Norrington. Útg. SWR Classic.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Lafourcade, Natalia, El David Aguilar - El Coconito (featuring El David Aguilar) (Barcelata Castro).
Dibango, Manu, Cuarteto Patria - Quizas quizas.
Vasquez, Javier y su Conjunto, Leida, Linda y La Bahia - Defiendeme Santa Barbara.
Coulibaly, Soungalo - Tata.
Ejigayehu "Gigi" Shibabaw, Abyssinia Infinite - Monew natana.
Hart, Su., Mercier, Paddy Le, Churchlow, Eleanor, Scot, Ayodele, Cradick, Martin, Niasse, Lakh, Pinto, Mark, Tagoe, Nii - Sogo.
Manet, Raghunath, Sivaraman, Umayalpuram - Raghunath tillana.
Varga, Gustav, Balogh, Joszef, Varga, Agnes, Nagy, Joszef - La rajake cheja.
Didon - Ezzina.
Kizaba - Fumu Na Betu.
Dutcher, Jeremy - Pomok naka Poktoinskwes.
Sissoko, Sayon, Lasnier, Bruno, Koyaté, Djelly Moussa, Haddad, Mehdi, Kouyate, Adama, Aubaile, David, Kone, Mamadou, Cinelu, Mino, Doumbia, Souleyman, N'Sangue, Guy, Keita, Salif - Katolon.


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Prélúdía nr. 4 í e-moll, Lento úr Prelúdíum op. 28. Árni Kristjánsson leikur á píanó.
Hljóðritun úr safni Ríkisútvarpsins 1983.
Sex bagatellur Op. 9 eftir Anton Webern. Kordo-kvartettinn leikur.
(Páll Palomares, fiðla; Vera Panitch, fiðla; Þórarinn Már Baldursson, víóla; Hrafnkell Orri Egilsson, selló)
Þættirnir eru:
1. Mässig
2. Leicht bewegt
3. Ziemlich fliessend
4. Sehr langsam
5. Äußerst langsam
6. Fliessend
Fyrsti þáttur, Mässig úr Strengjakvartetti nr. 2 í fís-moll, op. 10 eftir Arnold Schönberg. Emerson-kvartettinn leikur. (Eugene Drucker, fiðla; Philip Setzer, fiðla ; Lawrence Dutton, víóla; Paut Watkins, selló)
Fyrsti þáttur, Largo - attacca úr Strengjakvartetti nr. 8 í c-moll op. 110 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Borodin-kvartettinn leikur. (Rostislav Dubinsky, fiðla; Yaroslav Aleksandrov, fiðla; Dimitri Shebalin, víóla; Valentin Berlinsky, selló)
Annar þáttur, Largo, úr Píanósónötu nr. 2 op. 61 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Vladimir Ashkenazy leikur á píanó.
'Points on the curve to find...' : fyrir píanó og 22 hljóðfæraleikara eftir Luciano Berio. Pierre-Laurent Aimard leikur á píanó með Ensemble InterContemorain. Stjórnandi er Pierre Boulez.
Ballaða nr. 2 op. 38 í F-dúr eftir Frédéric Chopin. Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó.
Logn (2019) fyrir sópran, píanó og selló eftir Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Gerður Kristný Guðjónsdóttir orti ljóðið. Azima Ensemble flytur (Margrét Hrafnsdóttir, sópran; Ólöf Sigursveinsdóttir, selló; Hrönn Þráinsdóttir, píanó). Hljóðritun frá 2022.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Annar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum sínum og eigin æskuárum.

Útvarpsfréttir.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Hér er ró og hér er friður. Við heiðrum klósettið og sögu píparanna. Förum á flug í bakþotu.
BJÖRK - Come to me.
Skapti Ólafsson - Ó, nema ég.
Emiliana Torrini - Hold Heart.
Hrafn Thoroddsen - Alone again.
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Sumarið.
GCD - Sumarið er tíminn.
R.E.M. - E-Bow The Letter.
Ivar Klausen - Dreamer.
PIXIES - Where Is My Mind?.
Supergrass - Coffee in the pot.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
Beck - Ride Lonesome.
Morby, Kevin - Javelin.
Greiningardeildin, Emilíana Torrini, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
Nýdönsk - Ekkert mál.
MUGISON - Kossaflóð.
Suede - The wild ones.
PRIMAL SCREAM - It's alright, it's ok.
ZOMBIES - A rose for Emily
Howlin Wolf - Wang Dang Doodle.
Pálmi Gunnarsson - Skref fyrir skref.
MÚGSEFJUN - Sendlingur og sandlóa.
Útvarpsfréttir.
Rússlandsher varpaði flugskeytum á sex hverfi Kyiv í nótt. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum drápu Rússar nær þrjú hundruð almenna borgara í Úkraínu í síðasta mánuði.
Þúsundir komu saman til mótmæla í Úkraínu í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð. Fólkið krefst þess að hætt verði við brottvikningu varnarmálaráðherrans. Zelensky segir málin til skoðunar, mótmælendur hafi náð eyrum hans.
Eldar loga enn í skógi við Drammen í Noregi, en tekist hefur að slökkva þá í byggð.
Spánn og Argentína keppa um heimsmeistaratitilinn í fótbolta klukkan sjö í kvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sitja að líkindum saman á áhorfendapöllunum, en þeir hafa eldað grátt silfur á stjórnmálasviðinu. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði segir að fótbolti sé ekki bara fótbolti, íþróttir séu alltaf pólitískar.
Íbúar á vesturhluta landsins geta gert sér vonir um að leggja regnhlífunum í lok vikunnar, þegar vindur snýr að norðan. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Á Austurlandi hefur varla komið dropi úr lofti allan júlímánuð.
Sólþyrstir ferðamenn hafa streymt á þéttsetin tjaldsvæði á suðaustur- og austurlandi um helgina, og víða hefur verið erfitt að finna pláss til að hola niður tjaldi.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Sameinaðar á ný! Ragga komin heim eftir ferðalag um landið. Vikan var rædd, fótboltinn, stjörnumerki og tónleika fjöldann í sumar og haust. Baksýnisspegilinn og spákúlan eins og vanalega og bestu lögin þessa vikuna.