Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög við ljóð íslenskra ljóðskálda. Bubbi Morthens syngur eigið lag við Þjóðlag eftir Snorra Hjartarson og lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Ólafsvíkurrútan eftir Anton Helga Jónsson. Berglind Björk Jónasdóttir syngur lag Ingva Þórs við ljóðið Vaknaði í gær eftir Úlfhildi Dagsdóttur. Björgvin Halldórsson syngur lag Bergþóru Árnadóttur við ljóðið Borgarljósin eftir Sigurð Anton Friðþjófsson og Bergþóra syngur eigið lag við ljóðið Nótt í erlendri borg eftir sama höfund. Ragnheiður Gröndal syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóðið Sumarkvöld í Hvalfirði eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Teitur Magnússon flytur tvö frumsamnin lög, annarsvegar við Kysstu mig eftir Stefán frá Hvítadal og hinsvegar Háfjöllinrísa eftir Halldór Laxness. Að síðustu flytur Guðmundur Andri Thorsson tvö frumsamin lög, annarsvegar við ljóðið Þegar vetrarþokan grá eftir Þorstein Erlingsson og hinsvegar við Kvöldvísur Hallgríms Péturssonar.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
