Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson ræddi um refsiaðgerðir Breta, sem reyndar Ísland og fleiri ríki taka þátt í líka, gagnvart Ísrael þegar hann settist við Heimsgluggann. Ísraelar hafa brugðist harkalega við. Kóngafólk og lokadagar kosningabaráttunnar í Svíþjóð komu líka við sögu.
Svo voru skólamál til umfjöllunar. Skólahald á Bíldudal fer fram í glænýrri skólabyggingu, nánast ofan í flæðarmálinu. Skólinn er sá flottasti á landinu að mati skólastjórans Lilju Rutar Rúnarsdóttur.
Við lukum þættinum í dag á pólitík. Guðmundur Ingi Kristinsson alþingismaður utan flokka var gestur okkar. Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í gær lagði hann meðal annars til að 90 ára almannatryggingakerfi okkar Íslendinga fái hvíld og nýtt og sanngjarnara kerfi tekið upp í staðinn.
Tónlist:
Andri Ásgrímsson - Regnið drýpur.
Jón Kr. Ólafsson, Facon - Vísitölufjölskyldan.
Pink Floyd - The gnome.
Rolling Stones - Beast of burden.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá.
Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar.
Tónlist í þættinum í dag:
Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson)
Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson)
Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir að gjaldskrárhækkanir um áramót hafi hverfandi áhrif á verðbólgu. Sótt var að ráðherranum þegar hann mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu í morgun.
Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi menntamálaráðherra er ósáttur við hvernig brotthvarf hans úr ráðherrastóli og síðar Flokki fólksins bar að. Sögusagnir hafi bitnað á fjölskyldu hans.
Íslendingur sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin tapaði að minnsta kosti þremur milljónum króna. Hann segir eigandann hafa lofað sér íbúð sem hann fékk aldrei.
Borgarstjóri segir líklegt að fleirum verði sagt upp í áframhaldandi hagræðingu í Reykjavík. Hún er ánægð með árangur meirihlutans fyrstu hundrað dagana.
Bandaríkjaforseti lofar að allir Bandaríkjamenn fái 5.000 dollara ef Repúblikanar halda meirihluta á þinginu í kosningum í nóvember.
Heimild í fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík hefur vakið hörð viðbrögð í Norðurþingi. Íbúar telja hana mikilvæga fyrir byggðina og öryggi sitt. ISAVIA telur ekki að áætlunarflug hefjist aftur í bráð.
Mynd Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland og fleiri ríki sveipuð bandarískum fána kom til tals í kappræðum í gær fyrir þingkosningar í Svíþjóð.
Barnaheill og Geðhjálp eru á ferð um landið og hitta unglinga og foreldra á Patreksfirði í dag til að ræða samskipti tengsl og líðan. 10. september er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur.
Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri.
Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.
Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Enska tónskáldið Edward Elgar samdi þrjú af sínum merkustu kammerverkum árið 1918. Það voru strengjakvartett í e-moll, píanókvintett í a-moll og fiðlusónata í e-moll. Í þessum þætti verður fiðlusónatan leikin og einnig verða flutt sönglög eftir Elgar, en sum þeirra samdi hann við ljóð konu sinnar, Alice Elgar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Tónlist í þættinum:
Heart of Gold - Neil Young
„Vi er røde vi er hvide“ - Danska landsliðið 1986 / Re-Sepp-Ten
Crocodile Rock - Elton John
Starman - David Bowie
Dagur að rísa - Egill Ólafsson/ Stuðmenn Sumar á Sýrlandi
Orfeus og Evridís - Megas/Spilverkið
Smávinir fagrir - Hamrahlíðakórinn
Misa Criolla - Gloria - Jose Carreras
Romance In Durango - Bob Dylan & Emmylou Harris
God only knows - Beach Boys

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Moses Hightower - Búum til börn.
Einsöngvarakórinn, Svala Nielsen - Vísur Vatnsenda-Rósu. (Jón Ásgeirsson / Hulda)
Snorri Hallgrímsson - At the End of the Dance.
Hal Harris - Jitterbop baby.
Mikael Máni Ásmundsson - Unexpected turn.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Daníel Bjarnason, Hallveig Rúnarsdóttir - Summertime úr Porgy og Bess (1935). (G. Gershwin)

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
- Le Festin de L'Araignée, Köngulóarveislan, ballettónlist eftir Albert Roussel.
- Oiseaux exotiques, Framandi fuglar eftir Olivier Messiaen.
- Les Illuminations, Uppljómanir, fyrir sópran og strengjasveit eftir Benjamin Britten.
- Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel.
Einleikari: Betrand Chamayou.
Einsöngvari og stjórnandi: Barbara Hannigan.
Kynnir: Pétur Eggertsson.
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.
Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá.
Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar.
Tónlist í þættinum í dag:
Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson)
Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson)
Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Niðurskurðurinn í Reykjavík hefur verið gagnrýndur úr ýmsum áttum og formaður Sameykis birti ítarlegan pistil á Facebook-síðu sinni á dögunum þar sem hann sagði meðal annars að þegar forstöðumenn félagsmiðstöðva eru færðir til í starfi færist þeir fjær börnunum og að borgin sé að útvista verkefnum með tilheyrandi þjónustuskerðingu og aftengingu við nærsamfélagið. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir hins vegar að störf fólksins á gólfinu hafa verið vernduð ásamt störfum þeirra sem sinna börnunum. Einar Þorsteinsson, formaður Borgarráðs, kom til okkar
Gamanþættirnir Boltamömmur í Sjónvarpi Símans eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, en hugmyndin kviknaði út frá hennar eigin reynslu sem fótboltamamma. Þættirnir segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans þar sem dramatíkin, keppnisskapið og tilfinningarnar eru áberandi á hliðarlínunni. Við fengum Lilju Nótt og Hannes Þór Halldórsson til okkar en hann leikstýrir þáttunum ásamt Hafsteini Gunnari Sigurðssyni.
Hópur Íslendinga þveraði sjálfan Grænlandsjökul fyrir fjórum árum. Ferðin, sem er talin ein sú erfiðasta sem hægt er að leggja upp í á norðurslóðum, varð að grimmri baráttu þegar hópurinn lenti í verstu aðstæðum sem orðið hafa á jöklinum í marga áratugi. Ferðalangarnir Brynhildur Ólafsdóttir og Karen Kjartansdóttir komu og sögðu okkur frá þessu en nú styttist í að við fáum einnig innsýn í þessa miklu svaðilför í sjónvarpsþáttunum Úti á RÚV.
Úrslitaleikirnir í bikarkeppninni í fótbolta eru framundan og þeir verða í beinni á RÚV. Afturelding og Breiðablik mætast í bikarúrslitum karla annað kvöld klukkan 19 og á laugardaginn klukkan 16 mætast Þróttur Reykjavík og sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur í bikarúrslitum kvenna. Helga Margrét Höskuldsdóttir og Hörður Magnússon komu til okkar í bikarspjall.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þrír af meðlimum Quarashi mættu í heimsók og farið var rækilega í tíðarandann fyrir 30 árum þegar hljómsveitin varð til. Fálkar frá Keflavík hljómuðu, The Beach Boys, Karl Orgeltrio og fleiri.
FÁLKAR – Flugufrelsarinn
JAMIROQUAI – Deeper Underground (Radio Edit)
EYÞÓR INGI & ATOMSKÁLDIN – Vaka
PULP – Help the aged
ROLLING STONES – Rain Fall Down
AMY WINEHOUSE – Back To Black
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS – Þig Bara Þig
SPICE GIRLS – Say You'll Be There
SNOOP DOGGY DOGG – Doggy Dogg World
JOHN GRANT & KAKTUS EINARSSON – Follow
THE BEACH BOYS – Don't Worry Baby
KARL ORGELTRIO – Ladyshave (ft. Raggi Bjarna)
CREATURE OF HABIT – Myrká
STAKKA BO – Here we go
THE CARDIGANS – Erase/Rewind
SPACESTATION – Electroshock therapy
MOSES HIGHTOWER – Stutt skref
HIPSUMHAPS – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
NIRVANA – Smells Like Teen Spirit
JÓNFRÍ & LÚPÍNA – Endalaus framtíð
WHAM! – Everything She Wants
ALDOUS HARDING, HAWKLINE & H. – Venus in the Zinnia
BUBBI MORTHENS – Ég er tilbúinn
KK – Um Siðgæði
KACEY MUSGRAVES – I Believe In Ghosts
QUARASHI – Do it again
2001 – Get down tonight
SUBTERRANEAN – Crazy
QUARASHI – Switchstance
MGMT – Electric Feel
LAUFEY – Madwoman
THE DOORS – People are strange
LAND OG SYNIR – Ástarfár
OASIS – D'you know what i mean (NG's 2016 Rethink - radio Edit)
MARVIN GAYE – Sexual Healing

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir að gjaldskrárhækkanir um áramót hafi hverfandi áhrif á verðbólgu. Sótt var að ráðherranum þegar hann mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu í morgun.
Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi menntamálaráðherra er ósáttur við hvernig brotthvarf hans úr ráðherrastóli og síðar Flokki fólksins bar að. Sögusagnir hafi bitnað á fjölskyldu hans.
Íslendingur sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin tapaði að minnsta kosti þremur milljónum króna. Hann segir eigandann hafa lofað sér íbúð sem hann fékk aldrei.
Borgarstjóri segir líklegt að fleirum verði sagt upp í áframhaldandi hagræðingu í Reykjavík. Hún er ánægð með árangur meirihlutans fyrstu hundrað dagana.
Bandaríkjaforseti lofar að allir Bandaríkjamenn fái 5.000 dollara ef Repúblikanar halda meirihluta á þinginu í kosningum í nóvember.
Heimild í fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík hefur vakið hörð viðbrögð í Norðurþingi. Íbúar telja hana mikilvæga fyrir byggðina og öryggi sitt. ISAVIA telur ekki að áætlunarflug hefjist aftur í bráð.
Mynd Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland og fleiri ríki sveipuð bandarískum fána kom til tals í kappræðum í gær fyrir þingkosningar í Svíþjóð.
Barnaheill og Geðhjálp eru á ferð um landið og hitta unglinga og foreldra á Patreksfirði í dag til að ræða samskipti tengsl og líðan. 10. september er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Herra Hnetusmjör & Jón Jónsson – Las á milli línanna
Eivör - Verjugarðar
Dagný Halla - Finnurðu mig
Auður - Eyðimörk! Geneva!
Öskubakkinn - TARA
Bryndís Haraldsdóttir - Small Love
Guðný María - Pardon, please

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
Við ætlum að hlusta á Oasis í Konsert í kvöld – risatónleikana sem Oasis hélt í Knebworth á Englandi tvö kvöld í röð í ágúst 1996 fyrir 30 árum síðan þegar sveitin var á hátindi ferilsins.
Og tilefnið er nýja Oasis kvikmyndin – heimildamyndin Don´t look back in anger sem verið að er sýna í bíó víða um heim þessa dagana og fjallar um endurkomu hljómsveitarinnar síðasta sumar eftir að bræðurnin Liam og Noel höfðu ekki talast við í 15 ár. Hún er sýnd á sunnudaginn og næsta miðvikudag í Kringlunni.