07:03
Morgunvaktin
Heimsglugginn, flottasti skóli landsins og stjórnmál

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Bogi Ágústsson ræddi um refsiaðgerðir Breta, sem reyndar Ísland og fleiri ríki taka þátt í líka, gagnvart Ísrael þegar hann settist við Heimsgluggann. Ísraelar hafa brugðist harkalega við. Kóngafólk og lokadagar kosningabaráttunnar í Svíþjóð komu líka við sögu.

Svo voru skólamál til umfjöllunar. Skólahald á Bíldudal fer fram í glænýrri skólabyggingu, nánast ofan í flæðarmálinu. Skólinn er sá flottasti á landinu að mati skólastjórans Lilju Rutar Rúnarsdóttur.

Við lukum þættinum í dag á pólitík. Guðmundur Ingi Kristinsson alþingismaður utan flokka var gestur okkar. Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í gær lagði hann meðal annars til að 90 ára almannatryggingakerfi okkar Íslendinga fái hvíld og nýtt og sanngjarnara kerfi tekið upp í staðinn.

Tónlist:

Andri Ásgrímsson - Regnið drýpur.

Jón Kr. Ólafsson, Facon - Vísitölufjölskyldan.

Pink Floyd - The gnome.

Rolling Stones - Beast of burden.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,