Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Í þætti dagsins stöndum við undir mjög stífu steypiregni og mun samkvæmt nýjustu spám , rigna á okkur úr öllum áttum og þá bregðumst við auðvitað við því eins og við kunnum best, við setjum undir okkur hausinn og látum ekki deigann síga! Tónlistin í þættinum er tekin hvaðanæva af í þeim tilgangi einum að uppfylla væntingar og gleðja hjörtu sem slá.
Sættu þig við það - Bjarni Sæbjörnsson. Útsetning: Margrét Kristín Blöndal
Upptaka í einkaeigu. Óutgefið efni, flutt í þessum þætti aðeins, með góðfúslegu leyfi höfunda.
Don´t - Elvis Presley Hann lifir í draumi - Helga Möller og hljómsveit Jakobs Magnússonar.
Trommuleikarinn - Steinunn Harðardóttir/DJ.Flugvél og geimskip.
Mary in the morning - Glen Campbell
Hún hefur trú á mér - Pálmi Gunnarsson.
Manitoba - Gunnar Þórðarsson
Komdu með - Sverrir Guðjónsson og Pónik.
Girls, run the world - Beyoncé Knowles
Four woman - Nina Simone.
Rafmagnssnúrurnar - Rafmagnssnúrurnar. Einkaupptaka með góðfúslegu leyfi hljómsveitarinnar
Love Shack - B-52
Þátturinn var fyrst á dagskrá 28. júní 2014.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Í fimmta þætti er fjallað um Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Viðmælendur eru Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og Rósa Magnúsdóttir sagnfræðiprófessor.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 3. september 2022.

frá Veðurstofu Íslands.
Fjöllin, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn rígheldur.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
„Það vantar þrjá árganga í leikskólann og ekki vitað til þess að nein sé ólétt. Hvernig fer þá með skólann? Það er það sem maður hefur áhyggjur af, það vantar aðeins unga fólkið.“ Þetta segir Jón Ingi, sem dvelur á Tálknafirði á sumrin, tekur þátt í strandveiðunum.
Það er mikil uppbygging í tengslum við fiskeldi en húsnæðisskortur hamlar fólksfjölgun. Það hafa verið sviptingar í atvinnulífinu í gegnum tiðina en Jón Ingi bindur vonir við fiskeldið, samgönguúrbætur og ferðaþjónustu.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. september 2017.
Prestur og predikari: Sr. María Rut Baldursdóttir
Organisti og stjórnandi kórs Guðríðarkirkju: Arnhildur Valgarðsdóttir
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu og gítar. Gísli Helgason leikur á blokkflautu. Laufey Þóra Friðriksdóttir og Guðríður Sirrý Gunnarsdóttir lesa ritningarlestra.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Forspil: Kórsöngur: Einhvers staðar , einhvern tíma aftur, lag og texti eftir Magnús Eiríksson , útsetningu gerði Berta Dröfn Ómarsdóttir
Inngöngusálmur Númer 551 Á hverjum degi, Drottinn minn, sálmur númer 551, lag og texti eftir KK, Kristján Kristjánsson
Dýrðarsöngur: Númer 265, Þig lofar, Faðir, líf og önd, Texti Sigurbjörn Einarsson og lag Nicolaus Decius
Lofgjörðarvers : Sálmur númer 478, Í dagsins dýrðarmynd ,Texti Eygló Eyjólfsdóttir, texti Gifford J. Mitchell
Guðspjallssálmur: Sálmur númer 691, Þú einn í ljós er leiddir, Texti Þorsteins Þorkelssonar við sænskt þjóðlag
Tónlist eptir predikun: Kórsöngur: Reyndu aftur, Lag og texti Magnúsar Eiríkssonar, útsetningu gerði Sigvaldi Snær Kaldalóns
Sungið bænasvar: Sálmur númer 287, Þinn vilji Guð, texti Kristján Vals Ingólfssonar og lagið gerði Patrick Matsikenyiri
Lokasálmur: Sálmur númer 540, Hróp mitt er þögult, Texti Sigurður Pálsson og lag Ragnheiður Gröndal, í útsetningu Gunnars Gunnarssonar
Eftirspil: Kvöldsigling, höfundur texta Jón Sigurðsson , lagið gerði Gísli Helgason og leikur hann sjálfur með á blokkflautu í laginu og í framhaldi af því leika Matthías Stefánsson a fiðlu og Arnhildur Valgarðsdóttir a flygil lag Björgvins Halldórssonar,Skýið.
Útvarpsfréttir.
Árásarmaður sem grunaður er um að hafa hleypt af skotum á kvöldverði samtaka blaðamanna í Hvíta húsinu í gærkvöldi vildi skjóta embættismenn í ríkisstjórn Trumps. Forsetinn slapp óhultur
Íbúum í suðaustur Noregi brá þegar jarðskjálfti 3,3 að stærð reið yfir í morgun. Íslendingur sem býr í Noregi vaknaði við þungt högg og hélt að um sprengningu væri að ræða.
Úkraínumenn minnast þess í dag að fjörutíu ár eru liðin frá slysinu í Tsjernobyl, versta kjarnorkuslysi sögunnar.
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir skilning skorta á störfum hjúkrunarfræðinga. Hún segir þá skoðun loða enn við stéttina að það eina sem þurfi til sé að vera góð kona.
Rusl hefur safnast upp í nágrenni við móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sviðsstjóri segir slíkt algengt á vorin þegar snjó tekur að bráðna. Plokkarar landsins týna rusl í dag á Stóra plokkdeginum.
Flautukarfa í framlengingu réði úrslitum í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta í gærkvöld
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins.
Umsjón: Elísabet Jökulsdóttir.
Lesarar: Þröstur Leó Gunnarsson og Vilborg Halldórsdóttir.
(frá árinu 2000)
Fyrsti þáttur: Glitrandi leðja og himneskur losti.
Lesið úr bókum Halldórs Laxness.
Lesari: Þröstur Leó Gunnarsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. september 2000.
Styrkt af Menningarsjóði útvarpsstöðva.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjólinu beinum við sjónum okkar að nýrri nálgun á tónlist barokktímans auk þess að heyra tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Julius Eastman og Emahoy Tsegue Maryam Gebru.
Tónlistin í þættinum:
Fantasía fyrir fiðlu eftir Telemann í a-moll. Rachel Podger flytur.
Fantasía fyrir fiðlu nr. 1 í B-dúr eftir Telemann, Aisha Orazbayeva flytur eigin útsetningu.
Af Bach Reworks-plötum Víkings H. Ólafssonar:
Prelúdía í G-dúr úr sellósvítu nr. 1 eftir Jóhann Sebastian Bach
For Jóhann
Úr Velstillta píanói J.S. Bach:
Prelúdía og fúga í a-moll,
Prelúdía og fúga í Fís-dúr
og
Prelúdía og fúga í Cís-dúr -- Mathias Halvorsen flytur eigin útsetningar á píanó.
Shades of Silence eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Nordic Affect flytur.
Eftir Julius Eastman:
Prime
Buddha - Field
Wild Up hópurinn flytur.
Píanóverk eftir og í flutningi Emahoy Tsegue Maryam Gebru:
The Homeless Wanderer og Mad Man’s Laughter
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Í greininni Úr fórum Halldórs Laxness fjallar Guðrún Kvaran málfræðingur um orðaforðann í verkum Halldórs Laxness, annars vegar dönsk tökuorð og hins vegar íslenskt alþýðumál.
Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.
Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Jón Kr. Ólafsson - Arnarfjörður.
Sigrún Jónsdóttir, Hljómsveit Jan Morávek - Í faðmi þér.
Memfismafían, Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Orðin mín.
Rauðu hundarnir - Nú er komið sumar.
Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig.
Álftagerðisbræður - Rósin.
Skriðjöklar - Bíllinn minn og ég.
Karlakórinn Jökull - Kostervals.
Óskar Pétursson - Það varst þú.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigfús Pétursson - Rósin.
Laufey - I wait, I wait, I wait.
Elmar Þór Gilbertsson, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Daníel Bjarnason - 02 Una furtiva lagrima úr Ástardrykknum (1832).
Jón Kr. Ólafsson - Arnarfjörður.
Sigrún Jónsdóttir, Hljómsveit Jan Morávek - Í faðmi þér.
Memfismafían, Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Orðin mín.
Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig.
Rauðu hundarnir - Nú er komið sumar.
Skriðjöklar - Bíllinn minn og ég.
Álftagerðisbræður - Rósin.
Karlakórinn Jökull - Kostervals.
Óskar Pétursson - Það varst þú.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigfús Pétursson - Rósin.
Bremnes, Kari - Gåte ved gåte.
Collins, Judy - Who knows where the time goes.
Eddukórinn - Kvölda tekur sest er sól.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kári Sævarsson einn af eigendum vörumerkjastofunnar Tvist. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Smásögur eftir Hauk Ingvarsson (sem eiga að koma út í heildarsafni og ekki enn kominn titill)
Tímabundin e. Kristján Hrafn Guðmundsson
Alistair McClean og Hammond Innes
Fávitinn e. Dostojevski
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriðason fer yfir það.
Læknar án landamæra eru meðal virtustu mannúðarsamtaka heims. Í rúma hálfa öld hafa starfsmenn þeirra lagt líf sitt að veði til þess að koma þeim allra hjálparlausustu meðal okkar til aðstoðar. Samtökin starfa á mörgum af hættulegustu stöðum í heimi og starfsmenn þeirra hraða sér gjarnan í áttina að hörmungum sem aðrir leggja á sig mikið að flýja.
Þessi samtök, sem við heyrum svo oft minnst á í fréttum, eru þekkt fyrir að vera sumpart djarfari en önnur álíka mannúðarsamtök, og veigra sér ekki við því að storka yfirvöldum í þeim löndum sem þau starfa - á meðan önnur samtök starfa þar ekki nema með samþykki yfirvalda. Þessi djarfa nálgun hefur orðið öðrum innblástur og stofnuð hafa verið önnur samtök, með svipaða hugmyndafræði, eins og Blaðamenn án landamæra, Kennarar án landamæra, Lögfræðingar án landamæra og Verkfræðingar án landamæra, svo fáein séu nefnd. En hvernig er að starfa fyrir Lækna án landamæra og hvað er það, sem fær fólk til þess að stofna lífi sínu - síendurtekið - í hættu, til þess að hjálpa öðrum? Oddur Þórðarson ræðir við Íslending sem hefur gert nákvæmlega þetta í heil 10 ár.
Fjöllin, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn rígheldur.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
„Það vantar þrjá árganga í leikskólann og ekki vitað til þess að nein sé ólétt. Hvernig fer þá með skólann? Það er það sem maður hefur áhyggjur af, það vantar aðeins unga fólkið.“ Þetta segir Jón Ingi, sem dvelur á Tálknafirði á sumrin, tekur þátt í strandveiðunum.
Það er mikil uppbygging í tengslum við fiskeldi en húsnæðisskortur hamlar fólksfjölgun. Það hafa verið sviptingar í atvinnulífinu í gegnum tiðina en Jón Ingi bindur vonir við fiskeldið, samgönguúrbætur og ferðaþjónustu.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. september 2017.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í gegnum einlæga frásögn deila tvær vinkonur reynslu sinni af ófrjósemi og meðferð í tæknifrjógvun og reyna að varpa ljósi á þá vegferð sem mörg pör þurfa að ganga í gegnum.
Ásdís Magnea Egilsdóttir

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Prélude úr La damoiselle élue, L. 62, eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Debussy Rameau (2020).
Veröld fláa sýnir sig - íslenskt þjóðlag í útsetningu eftir Hafliða Hallgrímsson sem hann gerði fyrir kórinn árið 1988. VIlhjálmur Hulter samdi textann.
Hamrahlíðarkórinn syngur, Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar. Upptaka fór fram í Háteigskirkju í Reykjavík 22. og 23. júlí 2019 og 9. og 11. mars 2020.
Nú máttu hægt, lag eftir Heinrich Pfeil, ljóðið orti Þorsteinn Erlingsson. Karlakórinn Þrestir syngur. Stjórnandi: Jón Ísleifsson. Hljóðritað 21. apríl 1947. Afritað í janúar 2009, hljóðhreinsað í mars 2021 af Hreini Valdimarssyni. Lakkplata 80019: hljóðrituð 21. apríl 1947.
Quatuor en sol majeur op. 33 nr.5, Hob. III : 41 eftir Franz Joseph Haydn. Quatour Mosaïque leikur.
Verkið er í fjórum þáttum:
1. Vivace assai
2. Largo e cantabile
3. Allegro (scherzo)
4. Allegretto (final)
Útgefið á plötunni: Quatuors op.33 (1997).
I. Adagio sostenuto - Presto, Sonata nr. 9 in A major op. 47 "Kreutzer" eftir Ludwig van Beethoven. Flytjendur eru Isabelle Faust sem leikur á fiðlu og Alexander Melnikov píanóleikari. Útgefið á plötunni: Complete sonatas for piano and violin (2009).
Arabeske in C major op. 18 eftir Robert Schumann. Emil Gilels leikur einleik á píanó. Hljóðritað 13. mars 1965.
Tilbrigði 8 a 2 Clav. úr Goldbergtilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach. Útsett af kammerhópnum Nevermind sem leikur. Hópurinn er svo skipaður: Anna Besson, þverflauta; Louis Creac'H, fiðla; Robin Pharo, gamba (viola da gamba); Jean Rondeau, semall, orgel. Upptaka fór fram í ágúst 2024 í Salle de Musique de La Chaux-de-Fonds.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda var fyrst á fætur á Rás 2 í morgun, lék ljúfa tóna og sló á þráðinn austur á Djúpavog þar sem Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir var á línunni og sagði fréttir af þeim slóðum. Gestur þáttarins að þessu sinni var svo Sigurbjörg J. Helgadóttir sem sagði frá rúmlega fjögurra ára baráttu við Long Covid sjúkdóminn sem lagði þessa íslensku ofurkonu og hefur haft gríðarleg áhrif á allt hennar líf og heilsu.
Lagalisti:
Soffía Karlsdóttir - Það er draumur að vera með dáta.
Soffía Björg - The road.
Bara Heiða - Stormtrooper.
Pétur Ben - Pink Cream.
Elbow - Golden slumbers.
Rumer - Aretha.
Aretha Franklin - Chain of fools.
Chicago - Saturday in the park.
Friðrik Dór - Bleikur og blár.
Elton John - Daniel.
Bat for lashes - Daniel.
The Beatles - The long and winding road.
Michael Stipe - I played the fool.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Baguettan er táknmynd Frakklands; stórkostleg í einfaldleika sínum. Við segjum frá henni og hreinsum svo sálina með því að fara út að plokka.
BJARTMAR - Velkomin á Bísann
Björgvin Halldórsson - Lonesome town
MÚGSEFJUN - Sendlingur og sandlóa.
Traffic - Dear Mr. Fantasy
Traffic - Feelin alright?
Kristný Eir - Ein leið að elska.
THE JAM - That's Entertainment.
Dr. Gunni - Síðasta fylleríið
Dr. Gunni - Einbreið brú
ÞÚ OG ÉG - Ástarsæla.
Isac Hayes - Walk on by
Kusk og Óviti - Árið mitt?
DAVID BOWIE - Cat People (Putting Out the Fire).
DONNA SUMMER - I Feel Love (Afrojack Remix).
Elín Hall - Tachylite.
CHEMICAL BROTHERS - One Too Many Mornings.
Lauryn Hill - Everything is everything.
Fatback Band - Gotta learn how to dance
OASIS - Who Feels Love.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Fanny - Hey Bulldog
THE DOORS - Hello, I Love You.
Útvarpsfréttir.
Árásarmaður sem grunaður er um að hafa hleypt af skotum á kvöldverði samtaka blaðamanna í Hvíta húsinu í gærkvöldi vildi skjóta embættismenn í ríkisstjórn Trumps. Forsetinn slapp óhultur
Íbúum í suðaustur Noregi brá þegar jarðskjálfti 3,3 að stærð reið yfir í morgun. Íslendingur sem býr í Noregi vaknaði við þungt högg og hélt að um sprengningu væri að ræða.
Úkraínumenn minnast þess í dag að fjörutíu ár eru liðin frá slysinu í Tsjernobyl, versta kjarnorkuslysi sögunnar.
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir skilning skorta á störfum hjúkrunarfræðinga. Hún segir þá skoðun loða enn við stéttina að það eina sem þurfi til sé að vera góð kona.
Rusl hefur safnast upp í nágrenni við móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sviðsstjóri segir slíkt algengt á vorin þegar snjó tekur að bráðna. Plokkarar landsins týna rusl í dag á Stóra plokkdeginum.
Flautukarfa í framlengingu réði úrslitum í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta í gærkvöld
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Sportrásin á Rás 2, strax eftir hádegisfréttir.
Víðir Sigurðsson - blaðamaður og höfundur bókanna Íslensk knattspyrna í rúm 40 ár mætir í spjall um, jú fótbolta og þróun íþróttarinnar á þessum tíma sem hann hefur verið að skrifa um bhana.
Bragi Þórðarson (barabing) segir okkur frá Sindratorfærunni sem fer fram næstu helgi.
Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður talar um Íþróttamerki/logo, breytingar á rótgrónum merkjum og hversu vel það fer oft í félagsmenn.
Það styttist í heimsmeistarakeppnina í fótbolta sem fer að mestu fram í Bandaríkjunum. En hvernig gengur að gera landið tilbúið fyrir keppnina, innviði eru á mörgum stöðum ekki klár og það er rifist um hver eigi að borga lagfæringar og annað plús að Bandaríkin eru í stríði við eitt landanna sem tekur þátt í mótinu.
Magnús Haukur Harðarson og Baldvin Már Borgarsson setjast síðan með okkur og rýna í Lengju Deildir karla og kvenna og kíkja væntanlega aðeins í Bestu deildirnar.
Að sjálfsögðu kíkjum við á stöðuna í öðrum greinum þar sem allt logar í spennu og góðu stuði.
Lagalisti dagsins
RÚNAR JÚLÍUSSON OG UNUN - Hann Mun Aldrei Gleym'enni.
THE VERVE - Bitter Sweet Symphony.
Twenty one pilots - Drag Path.
CLANNAD & BONO - In A Lifetime.
A-HA - I've Been Losing You.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
AMY WINEHOUSE - Back To Black.
HJÁLMAR - Glugginn.
MT Jones - I Don't Understand.
Agent Fresco - Howls.
BEASTIE BOYS - Get it together.
Allen, Lily - Pussy Palace.
BILLY IDOL - Mony mony.
KK - Lífið er.
ÚLFUR ÚLFUR - Engar Hendur.
QUARASHI - Baseline.
hOFFMAN - Fallbeygðu mig.
Portugal. The man - Tanana.
GEORGE MICHAEL - Shoot The Dog.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð.
Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg.
Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Konur voru í aðalhlutverki í Suðupottinum í kvöld. Róshildur með nýtt lag “Samferða “ þar sem hún fær hana Iðunnni Einars til liðs við sig. Hún ætlar svo að halda útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum þann 16. Júní. Ný lög í bland við eldri og svo plata þáttarins með Joshua Idehen og heitir þeim ofurþjála titli “I know you’re hurting, everyone is hurting, everyone is trying, you have got to try. “
Krummi - Smile till it ends
Patchwork Inc. - Whatever makes you happy
Ego Ella May - What you waiting for
Frog - Best Buy
Widowspeak - No Driver
Spouses - Beth
Kit Sebastian - Metropolis
Joshua Idehen - Mum does the washing
Zena - It´s you (Ante Neh)
Superserious - Island full of deadbeats ( ..Or something)
Media Puzzle - Knowledge
Jessie Ware - Automatic
Monster Rally - Incredibly Blind
Róshildur - Samferða
Nikitch - Oussala
Eivør - Waves and the wind
Amor Vincit Omnia - The Bliss
Joshua Idehen - Turn it around
TLC - Diggin´ on you
Absalom feat. ISHA - Ronaldinho qui jongle
Teezo Touchdown - Up and down
Gorillaz - Damascus
Theo Crocker - Beyond
Kalabrese - Wanzka
Sigga Ózk - Ciao Ciao Bella
Gigi Girls - Il futuro
Gugusar - Hvað viltu
Jenni Vartiainen - Origo
Drengurinn Fengurinn - Eitur og Lyf
Honey Dijon - Satisfied
Purity ring - lemonlime
MAUS - Égímeilaðig
Kelly Lee Owens - On
Austra - Fallen Cloud ( Egofear remix)
Joshua Idehen - You wanna dance or what?
Jadzia - Solar Cells
Ishq - And awake
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Harðfiskur og indírokk á tilboði
Lagalisti
Árni Vil - Afternoons
Prewn - System
Chris Cohen - Night or Day
John Andrews and the Yawns - Goodbye Dirty Snow
Hudson Freeman - If You Know Me
Star’s Revenge - Me and My Friends
Ora Cogan - Love You Better
Bic Runga - Ghost in your Bed
Westside Cowboy - The Wahs
Mitski - I’ll Change for You
Dove Ellis - Pale Song
Daffo - Good God
MJ Lenderman - Wristwatch
Carla dal Forno - Under the Covers
Rakel og Halldór Eldjárn - HÉR
Hand Habits - Good Person
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Herra Hnetusmjör mætir til Atla í Plötu vikunnar til að kynna nýjustu breiðskífu sína, Tónlist til að sigra við. Í einlægu viðtali fer Árni Páll yfir ferilinn síðustu sjö ár, frá því að hafa ætlað að tryggja framtíðina með rekstri skemmtistaða og verslana, yfir í þá ákvörðun að helga sig tónlistinni alfarið. Við ræðum hvernig „IceGuys galsinn“ vatt upp á sig, hvernig það er að selja upp Eldborg á tveimur mínútum og af hverju þessi plata er virkar eins og tímahylki fyrir listamanninn í dag. Svo hlustum við auðvitað á plötuna sjálfa ásamt kynningum.