10:15
Fjörðurinn heldur: Lífið á Tálknafirði
Atvinnulífið og framtíð byggðarinnar.

Fjöllin, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn rígheldur.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

„Það vantar þrjá árganga í leikskólann og ekki vitað til þess að nein sé ólétt. Hvernig fer þá með skólann? Það er það sem maður hefur áhyggjur af, það vantar aðeins unga fólkið.“ Þetta segir Jón Ingi, sem dvelur á Tálknafirði á sumrin, tekur þátt í strandveiðunum.

Það er mikil uppbygging í tengslum við fiskeldi en húsnæðisskortur hamlar fólksfjölgun. Það hafa verið sviptingar í atvinnulífinu í gegnum tiðina en Jón Ingi bindur vonir við fiskeldið, samgönguúrbætur og ferðaþjónustu.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. september 2017.

Er aðgengilegt til 25. júlí 2026.
Lengd: 42 mín.
e
Endurflutt.
,