07:03
Morgunútvarpið
Kokkakonur,krakkfaraldur,Auddi Blö og gervigreindarmisskilningur

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Ákveðinn misskilningur er í gangi í umræðunni um gervigreind. Stundum er sagt að gervigreind muni til dæmis leysa forritara af hólmi og að hver sem er gæti lært hvað sem er með hjálp gervigreindar. Á sama tíma eiga fyrirtæki í erfiðleikum með að innleiða sjálfvirknilausnir sem raunverulega skapa virði og eftirspurn eftir fólki sem skilur þessa tækni til hlítar heldur áfram að aukast. Stefán Ólafsson, lektor við HR og forstöðumaður CADIA, rannsóknarseturs HR á sviði gervigreindar,kom til okkar í spjall um málið.

Kveikur fjallaði í gærkvöldi um krakkfaraldur á Íslandi og refsistefnu stjórnvalda. Kókaín flæðir inn til landsins í áður óþekktu magni og tæknideild lögreglunnar hefur ekki undan að taka á móti og greina fíkniefnasendingar . Sífellt fleiri reykja kókaín, sem er kallað krakk þegar það er reykt. Hvað segja meðferðaraðilar? Elías Guðmundsson, forstöðumaður Krýsuvíkur, hefur tekið eftir þessari þróun og hann kom til okkar í Morgunútvarpið. Þess má geta að Krýsuvíku verður 40 ára í næstu viku.

Kokkakonur er nýstofnað félag fyrir konur í matreiðslubransanum. Félagið er stofnað af fjórum konum sem vilja deila reynslu sinni af þessum karllæga heimi og segja þær mikilvægt aðh afa sameiginlegan vettvang til að geta talað opinskátt um reynslu sína og upplifun. Ólöf Helga Jakobsdóttir, matreiðslumeistari og rekstrarstjóri á veitingahúsinu Horninu, Guðfinna Guðmundsdóttir, matreiðslumeistari og menntunarfræðingur og Guðrún Sveinsdóttir, matreiðslumeistari og kennari, kíktu til okkar.

Okkar maður Auðunn Blöndal hefur opnað hverfispöbbinn Fossinn í kjarnanum Grímsbæ í Fossvogi. Audda tókst að opna bjórdælurnar rétt áður en boltinn rúllaði af stað í bestu deildinni og nú eru þau byrjuð að elda ofan í svanga íbúa hverfisins. Auddi kom til okkar í heimsókn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,