Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Undanfarið hafa komið upp alvarleg mál þar sem gæludýr hafa orðið fyrir frostlögseitrun eftir að hafa étið mat sem þau fundu utandyra í sumarbústaðahverfinu Hvammi eða Hvammsvík í Kjós. Grunur leikur á að um ásetningsverk geti verið að ræða. Við ræddum þetta sorglega ál við Helgu Hjartardóttur, dýralækni hjá Animalíu
Oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Hafnarfirði mætast í sjónvarpinu á Rúv í kvöld. Í tilefni af því skellum við okkur í Hafnarfjörð. Við byrjuðum niðrá höfn þar sem við ræddum við Inga Rafn Ragnarsson hafnsögumann. Því næst skellum við okkur á kaffibarinn Barböru þar sem við hittum rekstrarstjórann Ólöfu Birnu Bjarnadóttur og svo lukum við heimsókninni í Firðinum þar sem við tókum nokkra Hafnfirðinga tali.
Annan hvern þriðjudag heyrum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni á Spáni en í Spánarspjallinu nú sagði hann okkur okkur af bókaútgáfu á Spáni, 14 ára gagnfræðingi sem fær ekki að fara til Bandaríkjanna á Allsherjarþing SÞ í New York og þá sagði hann okkur litla sögu frá Úganda en þar hefur geisað borgarstríð í 30 ár.
Sumardagurinn fyrsti í ár verður tileinkaður náttúru Íslands hjá Landvernd. Þá á að ganga fyrir náttúruna og framtíðina og í framhaldi af því verður pallborð í norræna húsinu með oddvitum stjórnmálaflokka í sveitarstjórnarkosningum. Til þess að segja okkur meira kom til okkar Ragnhildur Katla Jónsdóttir upplýsingafulltrúi Landverndar.
Stígur Helgason kíkti til okkar. Hann heldur utan um kosningaumfjöllunina hér á Rúv, sem fer af stað í kvöld. Við fengum hann til að segja okkur hvernig fyrirkomulagið á henni verður næstu vikurnar.
Sjávardjásn er nýsköpunarverkefni sem byggir á sjálfbærni og skapandi endurnýtingu. Frumkvöðlahópur í Menntaskólanum við Sund fékk hugmyndina þegar þau fóru að velta fyrir sér hvað verður um fiskikróka eftir að þeir hætta að nýtast í veiðum. Í stað þess að enda sem úrgangur nýtum þau þá á nýjan og verðmætan hátt með því að umbreyta þeim í handgerða, einstaka eyrnalokka. Þær Kamilla Mía Briem og Halldóra Mjöll Snorradóttir komu til okkar og sögðu frá.
