07:03
Morgunútvarpið
Pétur Jóhann Sigfússon og Fjármálaleikarnir

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Fjármálaleikarnir hefjast í dag en næstu daga gefst nemendum á unglingastigi í grunnskólum landsins tækifæri til að taka þátt í spennandi netkeppni í fjármálalæsi. Þátttakendur spreyta sig á fjölbreyttum spurningum um fjármál og keppa í nafni síns skóla, en sá skóli sigrar sem fær hlutfallslega flest stig. Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri fjármálafræðslu kíktu til okkar.

Sævar Helgi Bragason kom til okkar og leit með okkur til himins.

Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon er með mörg járn í eldinum. Fyrir helgi var tilkynnt að hann er einn af skemmtikröftunum sem koma fram í þættinum Góðir Íslendingar, sem hefst á RÚV í lok mars. Þá ferðast hann um með uppistand ásamt því að undirbúa hlaðvarpssýningu með Sveppa. Allt að gerast og þá er kjörið að kíkja í Morgunútvarpið í kaffispjall.

Íþróttadeildin mætti í Morgunútvarpið eins og venjulega á mánudögum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,