
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. október 2013
Umsjón: Kristín Svava Tómasdóttir
Al Green, Love and happiness:
Hér söng bandaríski tónlistarmaðurinn Al Green um ást og hamingju, en ástin og þó fyrst og fremst grúvið verða á dagskrá hjá okkur í kvöld.
Freddy, Sombras y más sombras:
Næst syngur kúbanska söngkonan Fredesvinda Garcia, eða Freddy eins og hún var jafnan kölluð. Freddy lést árið 1961 og náði ekki þrítugsaldri, en þessi dimmraddaða söngkona markaði þó skýr spor í tónlistar- og bókmenntasögu Kúbu, en hún var fyrirmyndin að söngkonunni Estrellu Rodrigues í skáldsögu Guillermo Cabrera Infante, Tres tristes tigres. Þetta er La Freddy með Sombras y más sombras.
Aretha Franklin, I´ve never loved a man:
Þetta var bandaríska söngkonan Aretha Franklin með lagið I´ve never loved a man the way I love you frá 1967.
Steinunn Bjarnadóttir, Þú hvarfst á brott:
Sem söngkona er Steinunn Bjarnadóttir einna þekktust fyrir að hafa flutt lagið Strax í dag með Stuðmönnum á plötunni Sumar á Sýrlandi, en hér flytur hún erlent dægurlag sem hefur verið sívinsælt og gefið út í ótal útgáfum síðan það var samið árið 1910. Á ensku heitir það Some of these days en Steinunn syngur lagið við íslenskan texta Lofts Guðmundssonar, Þú hvarfst á brott. Þetta var Steinunn Bjarnadóttir með Þú hvarfst á brott.
Bill Withers, Use me:
Það er krúttbangsinn Bill Withers sem tekur við, en hann er óvenju ísmeygilegur þar sem hann syngur um hina þversagnakenndu vegi ástarinnar í laginu Use me frá 1972.
Ellý Vilhjálms, Hvers konar bjálfi er ég:
Þetta var hin ástsæla söngkona Ellý Vilhjálms með íslenska útgáfu af ensku söngleikjalagi frá 1962, Hvers konar bjálfi er ég.
Dusty Springfield, The windmills of your mind:
Ég heyrði fyrstu tóna næsta lags í bíósal í Portúgal haustið 2005, í auglýsingu fyrir írsku myndina Breakfast on Pluto, og varð strax viðþolslaus að koma yfir það höndum. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig því þetta var fyrir tíma Youtube, nettenging ekki jafn almenn ytra og í Reykjavík og netverslun iTunes tók ekki íslensk kreditkort. Þegar ég loksins komst yfir lagið, með dyggri aðstoð austurrísks kreditkorthafa, hlustaði ég á fátt annað í heila viku. Þetta er Dusty Springfield með The windmills of your mind.
Þetta var Dusty Springfield með lagið The windmills of your mind, af plötunni Dusty in Memphis, sem hún hljóðritaði, eins og nafnið gefur til kynna, í Memphis, árið 1969.
Antonio Machín, Camarera de mi amor:
Í kjölfar Dusty Springfield heyrum við í kúbanskspænska söngvaranum Antonio Machín. Machín var fæddur á Kúbu árið 1903 og frá barnæsku dreymdi hann um að verða óperusöngvari. Fyrir fátækan svartan strák var hins vegar ekki hlaupið að því að fá inngöngu í háborg klassískrar tónlistar, og hann fór því að syngja alþýðu- og dægurtónlist í staðinn. Hér er hann með lagið Camarera de mi amor.
Haukur Morthens, Með blik í auga:
Þetta var Haukur Morthens með eitt af sínum bestu lögum, Með blik í auga, hljóðritað í Kaupmannahöfn árið 1962.
Syl Johnson, I hear the love chimes:
En nú heyrum við bandaríska tónlistarmanninn Syl Johnson flytja lagið um klukkur ástarinnar: I hear the love chimes.
Olavi Virta, Sokeripala:
Þetta var Syl Johnson með I hear the love chimes. Það er finnski söngvarinn Olavi Virta sem tekur við. Hann var þekktur sem konungur finnska tangósins og hljóðritaði mörg frábær lög á söngferli sínum, en varð alkóhólismanum að bráð og drakk sig í hel aðeins 57 ára gamall árið 1972. En hér er Olavi Virta enn í fullu fjöri með ungverskættaða lagið Sokeripala, Sykurmoli, frá 1954.
The Olympians, To Sxoleio:
Þetta var Olavi Virta með lagið Sokeripala. Við höldum frá Finnlandi til Grikklands og heyrum hljómsveitina The Olympians flytja lagið Skólinn, en gríska titilinn treysti ég mér ekki til að bera fram.
Destiny´s Child, Survivor:
Þetta var hljómsveitin Destiny´s Child með Survivor frá árinu 2001. Hljómsveitin hefur nú lagt upp laupana en sem betur fer fáum við enn að njóta hæfileika einstakra meðlima hennar.
Vinicius de Moraes, Samba em prelúdio:
Um þessar mundir auglýsir íslenskt forlag nýja bók um vín með spakmæli eftir Robert Louis Stevenson, sem sagði að vín væri eins og ljóð á flösku. Brasilíski meistarinn Vinicius de Moraes sagði aftur á móti: “Viskíið er besti vinur mannsins. Það er eins og hvolpur á flösku.” Vináttan við viskíhvolpinn hafði sín áhrif á heilsu tónlistarmannsins, en hann lést fyrir sjötugt árið 1980. Besta plata Vinicius de Moraes er sú sem hann hljóðritaði á tónleikum í Buenos Aires árið 1970 ásamt söngkonunni Mariu Creuza og gítarleikaranum Toquinho. Við sláum botninn í þáttinn í kvöld með einu fallegasta laginu af plötunni, og er þó úr mörgum að velja, Samba em prelúdio.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
Litla lúðrasveitin - Kær Jesú, Kristi.
Dómkórinn í Reykjavík - Komið þið hirðar, þið konur og menn.
Þuríður Friðriksdóttir - Þessi Langi Vetur Vor.
Hljómskálakvintettinn - Það á að gefa börnum brauð.
Savanna tríóið - Nóttin Var Sú Ágæt Ein.
Ellý og Vilhjálmur - Jólin alls staðar.
Haukur Morthens - Frostrósir.
Kór Barnaskóla Akureyrar - Bjart er yfir Betlehem.
Dómkirkjukórinn í Reykjavík - Faðir Andanna.
Svanhildur Jakobsdóttir - Jólin, jólin.
Sigurður Guðmundsson of Memfismafían - Veðrið Er Herfilegt.
VILHJÁLMUR VILHJÁMSSON - Jólin koma.
BORGARDÆTUR - Gobbidí Gobb.
BORGARDÆTUR - Jólablús.
The Delta Rhythm Boys - Jeg gik mig over sø og land.
TOM WAITS, Blind Boys of Alabama - Go Tell It On The Mountain (featuring Tom Waits).
South River Band - Hvað get ég gefið þér um jólin.
Teinar - Jolasól.
Andrea Gylfadóttir - Veðrið Er Herfilegt.

Veðurstofa Íslands.
Í kringum 1960 var rafmagn lagt til sveitabæja innst í Eyjafirði sem hluti af markvissri áætlun stjórnvalda um að rafvæða landið. Sölvadal var þó sleppt. Hann er einn af dölunum innst í firðinum og þar var búið á þremur bæjum. En hvaða afleiðingar átti sú ákvörðun eftir að hafa í för með sér? Fjallað er um byggðasögu Sölvadals og rætt við fólk sem þekkir af eigin raun hvernig er að búa á svæði sem tengdist aldrei rafveitukerfi landsins.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út?
Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Halldór Hauksson, Hrólfur Eiríksson, Jón Björn Hákonarson, Njáll Kristjánsson og Finnur Yngvi Kristinsson.
Einnig eru flutt brot úr eldri viðtölum við Tryggva Emilsson og Lilju Karlsdóttur.
Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Arnór Sigurjónsson fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu öryggis- og varnarmál, sniðgöngu Íslands í Eurovision og sæðisgjafamálið.
Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Útvarpsfréttir.
Það er óvíst hvort flokkar í borginni nái að sameinast á tvístruðum vinstri vængnum, segir prófessor í stjórnmálafræði. Ef tekst að mynda öflugt framboð séu þar mikil sóknarfæri.
Bandaríkjaforseti er meðal fjölda þekktra manna sem eru á nýbirtum ljósmyndum úr dánarbúi Jeffreys Epstein. Demókratar segja aðrar myndir sem ekki voru birtar vekja óhug.
Grísk yfirvöld segja að fleiri börn hafi verið getin þar með sæði manns með lífshættulegan genagalla en áður var talið. Alls hafa því yfir 200 börn víða í Evrópu verið getin með sæði mannsins.
Nýjasta útgáfan af tillögum um friðarsamkomulag í Úkraínu verður rædd í Berlín um helgina með evrópskum og bandarískum embættismönnum. Hópur evrópskra leiðtoga er væntanlegur þangað á morgun eða mánudag, til fundar við Úkraínuforseta.
Krabbameinsfélagið hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða til þess að bregðast við ofþyngd og offitu barna. Slíkt er meðal helstu áhrifaþátta sem auka líkur á krabbameini.
Ástralskur áhrifavaldur breytti lífi tæplega níræðs Bandaríkjamanns í byrjun mánaðar með því að safna fyrir hann ríflega 250 milljónum króna. Hinn síðarnefndi er ekkill sem þurfti að fara aftur út á vinnumarkað vegna skulda sem söfnuðust upp í kringum veikindi látinnar eiginkonu hans.
Noregur leikur til úrslita á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta - sjöunda stórmótið í röð.
Svo heyrum við aðeins af jólaundirbúningi í lok fréttatímans, en í Safnaðarheimili Kópavogskirkju er verið að skera út og steikja laufabrauð.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við verðum á jákvæðum og uppbyggilegum nótum í Heimskviðum í síðasta þættinum fyrir jól. Þátturinn verður því með örlitlu jólaívafi, við skoðum jólamyndir og jólatónlist en fyrst og fremst ætlum við að segja ykkur jákvæðar og skemmtilegar fréttir utan úr heimi. Til dæmis hvernig ástralskur áhrifavaldur kom því til leiðar að 88 ára gamall ekkill frá Michigan í Bandaríkjunum gat loks hætt að vinna. Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur frá því. Svo fjallar Dagný Hulda Erlendsdóttir um einn síðasta blaðsalann í Frakklandi, og kannski í allri Evrópu, en hann hefur selt blöð í París í hálfa öld og fékk fyrir það orðu fyrir framlag sitt til franskrar menningar. Við förum líka á happy hour í Finnlandi með Hallgrími Indriðasyni og á helgileik í Brussel með Birni Malmquist.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Tom Manoury fæddist inn í tónlist, eins og hann lýsir því, enda voru foreldrar hans bæði tónlistarmenn og tónlist allt umlykjandi á heimilinu. Hann fór og snemma á læra á hljóðfæri, en unglingauppreisn hans var að hætta alveg í músík. Það stóð þó ekki lengi, því hann fann eigin leið inn í tónlistina aftur og hefur stundað hana síðan hér á landi og erlendis í bland við allskonar tilraunamennsku.
Lagalisti:
Óútgefið - Soundtrains
Óútgefið - yrk-test
Óútgefið - rafsax
Óútgefið - hyper organ
Okuma - Rök
Óútgefið - Illindi
Óútgefið - Qujanar
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Sagnfræðileg yfirferð um Kúrs – þáttinn sem hét áður Fólk og fræði - og í upphafi Þjóðbrók. Þátta sem hafa það að markmiði að gefa nemendum Háskóla Íslands tækifæri til að kynnast útvarpinu sem miðli og fá reynslu af þáttagerð, - þar sem nemendur vinna hálftíma útvarpsþátt undir handleiðslu kennara.
Umsjón Valgerður Jónsdóttir.
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Hugmyndin um skóla. Gestur er Jónas Pálsson, fyrrverandi skólastjóri Æfingaskóla kenneraskólans og rektor KHÍ
Umsjónarmenn: Ævar Kjartansson og Páll Skúlason
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Þrjár nýjar, vænar og grænar ljóðabækur í þætti dagsins.
Alda Björk segir frá og les upp úr nýjustu ljóðabókinni sinni, Bakgrunninum, sem er jafnframt fyrsta bókin í nýrri ritröð KIND-útgáfu.
Draugamandarínur er fyrsta ljóðabók Birgittu Bjargar Guðmundsdóttur, við ræðum um efni bókarinnar, mandarínuberki, tekknóbreik og röntgengeisla og hún les upp nokkur ljóð.
Jón Kalman Stefánsson var að senda frá sér fimmtu ljóðabókina sína, Þyngsta frumefnið, sem tilnefnd er til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Jón Kalman verður gestur þáttarins og ræðir við mig um ljóðin og skáldskapinn.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Jones, Philly Joe, Chambers, Paul, Rollins, Sonny, Garland, Red - Paul's pal.
James, Elmore, Brown, J.T., Payne, Odie, Jones, Little Johnny - Hoy hoy.
Ingibjörg Elsa Turchi - Neos.
Marína Ósk Þórólfsdóttir, Scott Ashley McLemore, Sunna Gunnlaugsdóttir, Nicolas Louis Christian Moreaux - Meðan nóttin spann.
Nico Moreaux - Always Shining.
Krall, Diana - They can't take that away from me.
Callender, Red, Tucker, Bobby Quartet, Kessel, Barney, Eckstine, Billy, Young, Lee, Tucker, Bobby - Smoked gets in your eyes.
Redman, Joshua, Cavassa, Gabrielle - Do You Know What It Means To Miss New Orleans?.
Mezzoforte - Take a breath.
Kvartett Halla Guðmunds - I couldn't.
Okegwo, Ugonna, Terrasson, Jacky, Parker, Leon - Bye bye blackbird.
Fréttir
Fréttir
Píratar vilja taka þátt í sameiginlegu framboði til borgarstjórnar í vor.
Yfir hundrað pólitískum föngum var sleppt úr fangelsi í Belarús í dag. Meðal þeirra er friðarverðlaunahafi Nóbels, sem hét áframhaldandi baráttu gegn stjórnvöldum.
Grímuskylda hefur verið tekin upp á þremur deildum Sjúkrahússins á Akureyri vegna fjölda inflúensutilfella.
Fljótagöng verða mikilvæg varaleið fyrir umferð um Norðurland og því mikið öryggismál, segir slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar
Boðið var upp á barrasúpu á jólamarkaði á Egilsstöðum í dag. Henni var lýst eins og búið væri að sópa öllu af jólaborðinu ofan í hangikjötssoð - með góðri slettu af rjóma.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um tilraun norska heimskautakönnuðarins Roalds Amundsens til þess að komast fyrstur manna á norðurpólinn flugleiðina, um borð í loftskipi.

Veðurfregnir kl. 18:50.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Jólasöngvarnir eru í fyrirrúmi í Sveifludönsum. Tríó Ray Brown og ýmsir söngvarar flytja lögin White Christmas, Away In A Manger, It Came Upon A Midnight Clear, The Christmas Song, Jingle Bells, Rudolph The Red Nosed Reindeer og O Tannenbaum. Kvintett George Shearing leikur lögin God Rest Ye Merry Gentlemen, Winter Wonderland, Ding Dong! Merrily, Let It Snow! Let It Snow! Let It Snow!, The Christmas Waltz og Donkey Carol. Jólakettir flytja lögin Jólasveinar ganga um gólf, Það á að gefa börnum brauð, Litli trommuleikarinn og Nóttin var sú ágæt ein. Hljómsveit Jack Jezzro flytur lögin I'll Be Home For Christmas, Here We Come A-Caoling, Happy Hollidya, You're A Mean One Mr. Grinch, Have Yourself A Merry Little Christmas og It's Beginning To Look A Lot Like Christmas.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Við yljum okkur við kertaljós, skoðum íslenska orðið kerti; og orð yfir sama hlut í öðrum málum; og það leiðir okkur á slóðir úralskra mála og samanburðarmálfræði; og svo kemur Grýla gamla við sögu og nokkur misvel þekkt Grýlubörn.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í þættinum er fjallað um Ingunni Jónsdóttur frá Melum í Hrútafirði.
Hún var fædd þar árið 1855 og lést í hárri elli 1947. Ingunn giftist Birni Sigfússyni sem lengi var alþingismaður og mikils metinn fyrir þjóðmálastörf sín. Þau bjuggu í Vatnsdal; fyrst á Hofi, síðan Grímstungu og loks á Kornsá.
Á gamals aldri skrifaði Ingunn minningar sínar í tveimur bókum; Bókin mín kom út árið1926 og Minningar árið 1937.
Lesið er úr fyrri bókinni í þættinum. Lesari með umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. janúar 2009.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan býður upp á gospel tónlist og jólasöngva. Þar á meðal eru nokkur lög í túlkun Golden Gate kvartettinum og Elvis Presley ásamt sönghópnum The Jordanaires.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. desember 2006.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Arnór Sigurjónsson fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu öryggis- og varnarmál, sniðgöngu Íslands í Eurovision og sæðisgjafamálið.
Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur í Fimmunni var Ilmur Kristjánsdóttir sem leyfði okkur að heyra fimm jólalög sem hafa fylgt henni í gegnum tíðina. Fyrsta lagið var með Dananum John Mogensen sem söng På loften sidder nissen. Tilefnið var að Ilmur bjó með fjölskyldunni í Danmörku þegar hún var sjö ára og á hlýjar minningar þaðan. Ilmur stendur fyrir átaki um hver jól þar sem kertastjakinn Glóð er seldur til styrktar Rótinni og Konukoti, en Ilmur er einn af stofnendum Rótarinnar. Kertastjakinn er hönnun og smíði Erlings Jóhannessonar gullsmiðs.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Dagur Hjartarson og Eva Björg Ægisdóttir ræða við Gísla Martein.
Laufey - Santa Claus Is Comin' To Town.
BAGGALÚTUR - Jól á Kanarí.
VALDIMAR GUÐMUNDSSON OG FJÖLSKYLDAN - Ég þarf enga jólagjöf í ár.
BOGOMIL FONT ÁSAMT STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR - Hinsegin jólatré.
Gunnar Ólason - Komdu um jólin.
ABBA - Little Things.
DAÐI FREYR - Allir dagar eru jólin með þér.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það snjóar.
Guðmundur Jónsson Söngvari - Jólainnkaupin.
THE POGUES & KIRSTY MCCOLL - Fairytale Of New York.
Helgi Björnsson - Ef Ég Nenni.
John Lennon - Happy Xmas (War Is Over).
RUT REGINALDS - Jólasveinninn Kemur.
Í SVÖRTUM FÖTUM - Jólin eru að koma.
Guðrún Gunnarsdóttir . - Kæri jóli.
Útvarpsfréttir.
Það er óvíst hvort flokkar í borginni nái að sameinast á tvístruðum vinstri vængnum, segir prófessor í stjórnmálafræði. Ef tekst að mynda öflugt framboð séu þar mikil sóknarfæri.
Bandaríkjaforseti er meðal fjölda þekktra manna sem eru á nýbirtum ljósmyndum úr dánarbúi Jeffreys Epstein. Demókratar segja aðrar myndir sem ekki voru birtar vekja óhug.
Grísk yfirvöld segja að fleiri börn hafi verið getin þar með sæði manns með lífshættulegan genagalla en áður var talið. Alls hafa því yfir 200 börn víða í Evrópu verið getin með sæði mannsins.
Nýjasta útgáfan af tillögum um friðarsamkomulag í Úkraínu verður rædd í Berlín um helgina með evrópskum og bandarískum embættismönnum. Hópur evrópskra leiðtoga er væntanlegur þangað á morgun eða mánudag, til fundar við Úkraínuforseta.
Krabbameinsfélagið hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða til þess að bregðast við ofþyngd og offitu barna. Slíkt er meðal helstu áhrifaþátta sem auka líkur á krabbameini.
Ástralskur áhrifavaldur breytti lífi tæplega níræðs Bandaríkjamanns í byrjun mánaðar með því að safna fyrir hann ríflega 250 milljónum króna. Hinn síðarnefndi er ekkill sem þurfti að fara aftur út á vinnumarkað vegna skulda sem söfnuðust upp í kringum veikindi látinnar eiginkonu hans.
Noregur leikur til úrslita á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta - sjöunda stórmótið í röð.
Svo heyrum við aðeins af jólaundirbúningi í lok fréttatímans, en í Safnaðarheimili Kópavogskirkju er verið að skera út og steikja laufabrauð.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Þau Anna Rún Frímannsdóttir blaðamaður og rithöfundur og Ómar Úlfur Eyþórsson útvarpsmaður og nýráðinn dagskrárstjóri Bylgjunnar mættu í afar bragðgóða Meðmælasúpu dagsins og mátti heyra af afbragðs afþreyingarefni sem þau mæltu innilega með fyrir hlustendur Rásar 2.
Tónlistarmennirnir Guðmundur Annas Árnason og Kristinn Jón Arnarson veltu eitt sinn fyrir sér hvort það væri í alvörunni jólalegt á Tenerife en síðustu ár þá hafa sífellt fleiri Íslendingar kosið að verja jólunum þar eða á öðrum sólaráfangastöðum. Er hægt að upplifa alvöru jólastemningu á sólarströnd? Þetta hugsuðu þeir og á endanum komu þeir þessum vangaveltum í lagaform, glænýtt jólalag sem kallast Alvöru jól og við fáum að heyra af þessu öllu saman.
Loks var tekinn púlsinn á jólaskapi landsmanna þessa helgina þegar það voru 11 dagar til jóla.
Tónlistin dunaði einnig:
SNORRI HELGASON, EMMSJÉ GAUTI, VALDIMAR - Bara ef ég væri hann
VIGDÍS HAFLIÐA, VILLI NETO - Hleyptu ljósi inn
RUPERT HOLMES - Escape The Pina Colada Song
QUEEN - You're My Best Friend
FINE YOUNG CANNIBALS - Suspicious Minds
BLUE ZONE - Jackie
ICEGUYS - Stingið henni í steininn
RÚNAR JÚLÍUSSON - Gott er að gefa
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það snjóar
PAT BENATAR - We belong
JÓHANN HELGASON - She's Done It Again
WEEZER - Island In The Sun
ROYEL OTIS - Who's your boyfriend
PÁLL ÓSKAR - Sjáumst aftur
LAUFEY ELÍASDÓTTIR - Monkey Gone to Heaven
HJÁLPARSVEITIN - Hjálpum þeim
ÍVAR KLAUSEN - All Will Come To Pass
BAGGALÚTUR, SIGGA BEINTEINS - Hótel á aðfangadag
PRETENDERS - 2000 Miles
RÍÓ TRÍÓ - Þá nýfæddur Jesú
LAUFEY - Santa Claus Is Comin' To Town
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Við skemmtum okkur konunglega yfir óútreiknanlegu GMT Sóla Hólm! Þátturinn stútfullur af smellum og ykkar uppáhalds tónlist.
Lagalisti:
Páll Óskar Hjálmtýsson & Benni Hemm Hemm - Undir Álögum
Bríet - Sweet Escape
Matthias Moon - Vor
Harry Styles - As It Was
Kjalar - Jólaboð Hjá Tengdó
Billie Eilish - Lunch
Stevie Wonder - Sir Duke
The Jackson 5 - Santa Claus Is Coming To Town
4 Non Blondes - What's Up?
Alanis Morissette - Ironic
Ragnhildur Gísladóttir - Jóla Jólasveinn
The Killers - Mr. Brightside
Talking Heads - Once In A Lifetime
Pálmi Gunnarsson - Hvers Vegna Varst'ekki Kyrr?
Pálmi Gunnarsson - Þorparinn
N-Trance - Set You Free
Eiríkur Hauksson - Jól Alla Daga
Iceguys - Þegar Jólin Koma
Lenny Kravitz - Believe
Sycamore Tree - Forest Rain
Laufey - Santa Baby
Digital Ísland - Eh Plan?
Haraldur Ari Stefánsson & Unnsteinn Manuel Stefánsson - Til Þín
Friðrik Ómar - Jóla Jóla
Stefán Hilmarsson & Ragnheiður Gröndal - Jólarómantík
Iceguys - María Mey
Fréttir
Fréttir
Píratar vilja taka þátt í sameiginlegu framboði til borgarstjórnar í vor.
Yfir hundrað pólitískum föngum var sleppt úr fangelsi í Belarús í dag. Meðal þeirra er friðarverðlaunahafi Nóbels, sem hét áframhaldandi baráttu gegn stjórnvöldum.
Grímuskylda hefur verið tekin upp á þremur deildum Sjúkrahússins á Akureyri vegna fjölda inflúensutilfella.
Fljótagöng verða mikilvæg varaleið fyrir umferð um Norðurland og því mikið öryggismál, segir slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar
Boðið var upp á barrasúpu á jólamarkaði á Egilsstöðum í dag. Henni var lýst eins og búið væri að sópa öllu af jólaborðinu ofan í hangikjötssoð - með góðri slettu af rjóma.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Samantekt lista: Matthías Már Magnússon.
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm komast aftur á toppinn, en að þessu sinni með lagið Undir álögum.
Lagalisti:
Wednesday - Elderberry Wine.
Vigdís Hafliðadóttir og Baggalútur - Jól á rauðu.
Rakel og Lón - Jólin eru að koma.
Brandi Carlile - Returning To Myself.
Valdimar - Karlsvagninn.
Tatjana og Birnir - Efsta hæð.
Lily Allen - Pussy Palace.
Helgar - Absurd.
Laufey - Santa Claus Is Comin' To Town.
Jordana og Almost Monday - Jupiter.
Olivia Dean - So Easy (To Fall In Love).
Bríet - Sweet Escape.
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm - Undir álögum.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Í nýjasta þætti Lagalistans tekur Ragnhildur Veigarsdóttir, tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Flott, sæti í stólnum og leiðir okkur í gegnum sinn persónulega lagalista.
Við fáum að heyra lögin sem hafa mótað hana – frá barnæsku og gegnum tónlistarferilinn – og sögurnar sem fylgja.
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það var mikið um jólalög í þætti kvöldsins eins og við var að búast. Presley hljómaði meira segja tvisvar sinnum með lagið Blue Christmas. Þetta gerist bara á Næturvaktinni.
Tónlstin í þættinum:
CANNED HEAT - Christmas Blues.
FLEETWOOD MAC - Shake Your Moneymaker.
AL GREEN - Let's stay together.
BAGGALÚTUR - Jólin eru okkar.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
ELVIS PRESLEY - Blue Christmas.
THE POGUES & KIRSTY MCCOLL - Fairytale Of New York.
GEORGE THOROGOOD AND THE DESTROYERS - Bad to the Bone.
RAGE AGAINST THE MACHINE - Bulls on parade.
Páll Rósinkranz - Í ljósinu.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það snjóar.
SKRÁMUR - Skrámur Skrifar Jólasveininum.
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Við stöndum hér enn.
ROLLING STONES - Angie.
Helena Eyjólfsdóttir - Manstu ekki vinur (Í rökkurró).
ÞÚ OG ÉG - Hátíðarskap.
Kinks - Father Christmas.
TEN YEARS AFTER - Bad Scene.
RAGE AGAINST THE MACHINE - Bulls on parade.
SÚKKAT - Jólalag.
DIRE STRAITS - Sultans Of Swing.
WEEZER - Across the Sea.
BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Jólalag.
BILLY JOEL - Tell Her About It.
Einar Ágúst og Gosarnir, Gosarnir, Einar Ágúst Víðisson - Léttur yfir jólin.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Nú mega jólin koma fyrir mér.
ELVIS PRESLEY - Blue Christmas.
ROD STEWART - Maggie May.
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Stjáni.
SNIGLABANDIÐ - Jólahjól.
Hörður Áskelsson, Karlakór Reykjavíkur - Þakkarbæn.