16:05
Síðdegisútvarpið
Umdeildar breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Ragnar Jón HRólfsson fréttamaður kom til okkar í dag og ræddi það þegar flugsamgöngur fóru úr skorðum í gærkvöld þegar grunsamlegir drónar sáust á flugi við Kastrup í Kaupmannahöfn og Gardemoen í Oslo.

Breytingar á gatnamótum við Höfðabakka hafa verið í umræðunni upp á síðkastið en lokun beygjuakreinar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls hefur leitt af sér stórauknar umferðatafir á gatnamótunum og í austurhluta borgarinnar. Formaður íbúasamtaka Árbæjar segir breytingarnar valda mikilli óánægu meðal íbúa og fyrirtækja í hverfinu. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi kom til okkar í gær og ræddi málið en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðust gegn þessum breytingum þ.e að beygjuakreinarnar yrðu teknar. Dóra Björt Guðjónsdóttur oddvita Pírata í borginni og formaður umhverfis og skipulagsráðs Reykjavíkur. kom til okkar í dag.

Jóhann Hlíðar Harðarson færði okkur fréttir frá Spáni.

Við fengum ábendingu á dögunum að það væri orðið erfitt að finna staði ef fólk hefur áhuga á að fara út að dansa? Skemmtanamenning landans fer í hringi eða hvað ? Er dansmenningin að deyja út - hvert er hægt að fara til að dansa ?

Kjartan Guðbergsson eða Daddi diskó og Steinþór Helgi Arnsteinsson eigandi skemmtistaðarins Röntgen mættu til okkar í Síðdegisútvarpið og ræddu þessi mál.

Flestir þeirra sem starfa á vinnumarkaði kannast við það að fara í Starfsmannasamtal. Hvernig er hægt að undirbúa sig fyrir slíkt og hvernig er hægt að hámarka það sem út úr slíku samtali á að koma ? Inga Þórisdóttir er stjórnendaþjálfi og hefur langa reynslu í að undirbúa bæði stjórnendur og starfsfólk fyrir slík samtöl hún kom til okkar í dag.

Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir fréttamaður kom til okkar og sagði okkur frá fyrsta Kveiksþætti kvöldsins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,