07:03
Morgunútvarpið
5. september - Landsleikur, spilafíkn og tómstundir

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Aserbaísjan í undankeppni HM 2026 í kvöld. Hilmar Jökull Stefánsson, formaður Tólfunnar, stuðningssveitar íslensku landsliðanna, mætir til okkar í upphafi þáttar og hitar upp.

Það vakti athygli okkar að á samfélagsmiðlum Guls septembers var sjónum beint að verkefninu Karlar í skúrum þar sem eldri menn hittast og vinna að ýmsum verkefnum. Við ræðum við formanninn Jón Bjarna Bjarnason.

Sagt var frá því í vikunni að eigendur Ölvers í Glæsibæ hafi ákveðið að hætta með spilakassa á staðnum. Við ræðum málið við Ölmu Björk Hafsteinsdóttur formann Samtaka áhugafólks um spilafíkn.

Við höldum áfram að ræða íþrótta- og tómstundaiðkun barna eftir átta fréttir, þá með Skúla Helgasyni, formanni menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar og Aðalsteini Hauki Sverrissyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins.

Við förum yfir fréttir vikunnar með Tótlu I. Sæmundsdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla og Kára Hólmari Ragnarssyni, lektori í þjóðarrétti við HÍ.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,