12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 5. september 2025

Útvarpsfréttir.

Fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu og sérsveitar á Siglufirði í gærkvöld. Ráðist var á mann á þrítugsaldri og tveir eru enn í haldi.

Forseti Rússlands segir vestrænar hersveitir verða réttmæt skotmörk verði þær sendar til Úkraínu. Ráðamenn á þriðja tugs ríkja hafa sagst reiðubúnir að senda herlið til að tryggja öryggi Úkraínu.

Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fjölda brota gegn konu sinni og fimm börnum þeirra. Maðurinn braut ítrekað gegn nálgunarbanni þar til hann var settur í gæsluvarðhald.

Hitabylgja á Austurlandi í ágúst eyðilagði lífrænan úrgang í tunnum við heimili fólks. Bíll sem var kominn með úrganginn til moltugerðar í Eyjafjörð var sendur aftur austur.

Fulltrúar tveggja stærstu aðildarríkja Evrópusambandsins vildu að Ísland og Noregur yrðu undanskilin verndaraðgerðum vegna járnblendis, þegar málið var rætt í sérstakri nefnd framkvæmdastjórnar ESB. Rannsókn á markaðsaðstæðum virðist enn standa yfir.

Vinna við að hreinsa burt brunarústir við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði gæti hafist í komandi viku. Sátt hefur náðst í tveggja ára deilu húseigenda og bæjaryfirvalda.

Sænska ríkisstjórnin ætlar að lækka matarskatt um helming á næsta ári. Hann verður sex prósent, sá lægsti á Norðurlöndum.

Forláta pípuhattur og uppstoppuð rjúpa sem rataði í fatasöfnun Rauða krossins er meðal þess boðið er upp í hádeginu til styrktar hjálparsíma samtakanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,