08:03
Morgunglugginn
Svekkelsi í Sviss og höfundarverk Bubba

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.

Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu kemst ekki upp úr sínum riðli á EM eftir tap gegn Sviss. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður er í Sviss og fór yfir leik gærdagsins og það sem framundan er hjá liðinu.

Fyrir helgi bárust fréttir af því að Bubbi Mort­hens hef­ði selt höf­und­ar­verk sitt: ríflega 800 lög og texta, yfir 50 hljómplötur, sem og réttinn til að nýta nafn Bubba og útlit, eins og sagði í fréttatilkynningu. En hvað þýðir þetta? Bubbi Morthens var gestur Morgungluggans:

Tónlist:

Leiðin heim - Lights on the Highway

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 57 mín.
,